Home › Umræður › Umræður › Skíði og bretti › Tindfjöll › Re: svar: Tindfjöll
4. apríl, 2007 at 15:29
#51341
Meðlimur
Þessi árstími er líklega einn af þeim betri til að farar með tilliti til sprungna.
Ég gæti átt punkt á skálunum, en öngvan á leiðinni uppeftir. „normal“ leiðin upp á Ými liggur frá ísalp-skálanum inn í Skíðadal og þaðan upp Búraskarð inn á jökulinn. Úr skarðinu er hægt að halda í tiltölulega beinni stefnu á Ými án þess að verða var við miklar sprungur.
Mæli með Tindfjöllum í vorskíðun!
kv.
Halli