Re: svar: Tindfjallaskáli – í tilefni af mynd dagsins

Home Umræður Umræður Almennt Tindfjallaskáli – í tilefni af mynd dagsins Re: svar: Tindfjallaskáli – í tilefni af mynd dagsins

#48785
0801667969
Meðlimur

Sammála því að gera verulegt skurk í viðhaldi á Tindfjallaskála. En væri ekki einnig við hæfi að gera verulegt skurk í því að grafa upp hugsanlegar eldri nafngiftir og hafa það er sannara reynist? Með þessu tvennu gerum við svæðinu hærra undir höfði og ásýnd klúbbsins út á við betri.

Myndin sýnir skála sem þarfnast viðhalds og í baksýn er horn eða gnípa sem nefnist Gígjarhorn (sbr. póst Skúla Magnússonar að neðan haft eftir Magnúsi Hallgríms.) en Hornklofi er þá óþarfa nýnefni.