Athugasemdir um nýju heimasíðuna

Home Umræður Umræður Athugasemdir Athugasemdir um nýju heimasíðuna

  • Höfundur
    Svör
  • #58664
    Helgi Egilsson
    Keymaster

    Legg til að athugasemdir um nýju heimasíðuna komi fram hér í einum þræði. Vonandi líkar ykkur vel, en endilega bendið á tillögur að úrbótum og spyrjið ef eitthvað vefst fyrir ykkur!

    #58691
    Skabbi
    Participant

    Til hamingju með nýja síðu, við fyrstu sýn virðist hún vera öll hin glæsilegasta!

    Ég fékk einhverja villumeldingu varðandi „vafrakökur“ þegar ég reyndi að logga mig inn. Það er allt rétt stillt hjá mér þannig að ég veit ekki hvað veldur. Endaði á að breyta lykilorðinu mínu (sem var tímabært hvort eð er), þá gekk þetta smurt.

    Nú vonar maður bara að hér kvikni líf að nýju!

    Skabbi

    #58692
    1908803629
    Participant

    Fálkaorðuna á stjórnarmeðlimi Ísalp! Frábært framtak 😀

    #58693
    Skabbi
    Participant

    Það virðist sem fullt nafn og mynd hafi ekki skilað sér yfir á nýju síðuna af þeirri gömlu. Til þess að skrifa pósta undir nafni þarf að fara í flipann efst til hægri á síðunni og „breyta upplýsingum um mig“. Einfalt!

    Skabbi

    #58694

    Glæsilegt! Til hamingju ÍSALP!!!

    Ági

    #58695

    Frábært! Til hamingju allir Ísalparar.

    #58696

    Ætla að setja inn nokkrar „nýjar leiðir“. Hvernig ber maður sig að í þeim efnum?

    #58697

    Vei til lukku.
    Líkt og Ági er ég einnig með nokkrar leiðir til skráninga en hafði samband við Ottó sem sagði að hver sem er getur ekki skráð en það verður kannski opnað fyrir það í framtíðinni. Svona ef fleiri eru að spá í þessu.

    Annars er þetta flott og skemmtileg síða. Fæ samt alltaf villumeldingu þegar ég reyni að innskrá mig í tölvunni minni en hún virkar í símanum.

    #58699
    Sissi
    Moderator

    Geggjuð síða, til hamingju.

    Fæ líka þetta vafrakökudæmi.

    Annað, getur verið að það sé eitthvað bras með að komast inn erlendis frá? Halli G. í Sviss fær:

    „Forbidden

    You don’t have permission to access / on this server.
    Additionally, a 403 Forbidden error was encountered while trying to use an ErrorDocument to handle the request.“

    • This reply was modified 8 years, 6 months síðan by Sissi.
    #58747
    Skabbi
    Participant

    Ég er á því að skráning leiða verði að vera öllum opin til þess að vefurinn geti gegnt sínu hlutverki. Enn er slatti af leiðum hér og þar um landið sem menn eiga eftir að skrá, og vonandi bætast nýjar leiðir við í vetur.

    Skabbi

    #58752
    Sissi
    Moderator

    Eru týnd 2 ár af þráðum, t.d. inni á Almennt efnisflokknum?

    #59311
    Sissi
    Moderator

    Detta ekki allar umræður inn í „Nýjustu umræður“ á forsíðunni? T.d. almennt, keypt og selt og Skíði og bretti?

    #59317

    Það eiga allar umræður að detta inn, hefurðu tekið eftir að eitthvað vanti?

    Og já, við vitum að það vantar 2 ár inn. Það varð því miður að velja að taka annaðhvort allt efnið af báðum databaseum sem lágu fyrir eða einungis eldra. Ef við tókum bæði þá tvöfaldaðist Userpoolið og við það brenglaðist allt forumið. Úr varð þessi ákvörðun. Til hefur staðið að reposta því litla efni sem vantar í nýja þræði sem pure text. Hvað finnst ykkur um þá lausn?

    Skráning leiða er nú opin á alla notendur.

    #59330
    Sissi
    Moderator

    Já, sýndist þessir flokkar sem ég nefndi hér að ofan ekki detta inn.

    Það væri eflaust skárra að ná þessu inn sem text en engu, sérstaklega varðandi nýjar leiðir og slíkt. Þið þekkið væntanlega best hvað er mögulegt í þessum efnum.

14 umræða - 1 til 14 (af 14)
  • You must be logged in to reply to this topic.