Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Ný ísleið › Re: svar: Ný ísleið
23. janúar, 2007 at 21:20
#50974
Meðlimur
Í ársriti ÍSALP 2000, blessuð sé minning þess má finna eftirfarandi pistil.
Innst í Fljótshlíð við mynni Gilsárgljúfurs, austan Þórólfsfells, fóru GHC og JB nýja leið þann 31. október 1998. Fyrri spönnin, sem sést frá veginum, byrjar í frístandandi 40m kerti, upp í stóra gróf þar sem annað 40m kerti tekur við. Mjög falleg leið sem vel þess virði er að keyra alla leið úr bænum fyrir. Leiðina nefndu þeir Giljagaur 0g er hún 80m, gráðan WI5
Ekki skal ég segja hvort hér sé sama leið á ferðinni en þessi var allavegana helvíti góð og hefði sjálsagt fengið einum tölustafnum hærri gráðu í dag. mæli með henni.
Fjallakveðja
Jökull