{"id":69647,"date":"2020-04-16T13:18:34","date_gmt":"2020-04-16T13:18:34","guid":{"rendered":"https:\/\/www.isalp.is\/?p=69647"},"modified":"2020-04-16T23:06:29","modified_gmt":"2020-04-16T23:06:29","slug":"humarklo","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/www.isalp.is\/en\/problem\/humarklo","title":{"rendered":"Humarkl\u00f3"},"content":{"rendered":"<p>Lei\u00f0 upp \u00e1 Humarkl\u00f3 \u00ed Heinabergsfj\u00f6llum.<\/p>\n<p>A\u00f0al erfi\u00f0leikarnir felast \u00ed seinustu 10m e\u00f0a svo. Ca 5.8 en \u00ed lausu bergi \u00fear sem erfitt er a\u00f0 vita hverju \u00e1 a\u00f0 treysta.<\/p>\n<div id='gallery-1' class='gallery galleryid-69647 gallery-columns-3 gallery-size-thumbnail'><figure class='gallery-item'>\n\t\t\t<div class='gallery-icon landscape'>\n\t\t\t\t<a href='https:\/\/www.isalp.is\/wp-content\/uploads\/2020\/04\/Humarkl\u00f3-map.png'><img width=\"300\" height=\"300\" src=\"https:\/\/www.isalp.is\/wp-content\/uploads\/2020\/04\/Humarkl\u00f3-map-300x300.png\" class=\"attachment-thumbnail size-thumbnail\" alt=\"\" loading=\"lazy\" srcset=\"https:\/\/www.isalp.is\/wp-content\/uploads\/2020\/04\/Humarkl\u00f3-map-300x300.png 300w, https:\/\/www.isalp.is\/wp-content\/uploads\/2020\/04\/Humarkl\u00f3-map-45x45.png 45w\" sizes=\"(max-width: 300px) 100vw, 300px\" \/><\/a>\n\t\t\t<\/div><\/figure><figure class='gallery-item'>\n\t\t\t<div class='gallery-icon portrait'>\n\t\t\t\t<a href='https:\/\/www.isalp.is\/wp-content\/uploads\/2020\/04\/Humarkl\u00f3-2.jpg'><img width=\"300\" height=\"300\" src=\"https:\/\/www.isalp.is\/wp-content\/uploads\/2020\/04\/Humarkl\u00f3-2-300x300.jpg\" class=\"attachment-thumbnail size-thumbnail\" alt=\"Mynd: Sigur\u00f0ur Hrafn Stefnisson\" loading=\"lazy\" aria-describedby=\"gallery-1-69648\" srcset=\"https:\/\/www.isalp.is\/wp-content\/uploads\/2020\/04\/Humarkl\u00f3-2-300x300.jpg 300w, https:\/\/www.isalp.is\/wp-content\/uploads\/2020\/04\/Humarkl\u00f3-2-45x45.jpg 45w\" sizes=\"(max-width: 300px) 100vw, 300px\" \/><\/a>\n\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t<figcaption class='wp-caption-text gallery-caption' id='gallery-1-69648'>\n\t\t\t\tMynd: Sigur\u00f0ur Hrafn Stefnisson\n\t\t\t\t<\/figcaption><\/figure><figure class='gallery-item'>\n\t\t\t<div class='gallery-icon portrait'>\n\t\t\t\t<a href='https:\/\/www.isalp.is\/wp-content\/uploads\/2020\/04\/Humarkl\u00f3.jpg'><img width=\"300\" height=\"300\" src=\"https:\/\/www.isalp.is\/wp-content\/uploads\/2020\/04\/Humarkl\u00f3-300x300.jpg\" class=\"attachment-thumbnail size-thumbnail\" alt=\"Mynd: Sigur\u00f0ur Hrafn Stefnisson\" loading=\"lazy\" aria-describedby=\"gallery-1-69650\" srcset=\"https:\/\/www.isalp.is\/wp-content\/uploads\/2020\/04\/Humarkl\u00f3-300x300.jpg 300w, https:\/\/www.isalp.is\/wp-content\/uploads\/2020\/04\/Humarkl\u00f3-45x45.jpg 45w\" sizes=\"(max-width: 300px) 100vw, 300px\" \/><\/a>\n\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t<figcaption class='wp-caption-text gallery-caption' id='gallery-1-69650'>\n\t\t\t\tMynd: Sigur\u00f0ur Hrafn Stefnisson\n\t\t\t\t<\/figcaption><\/figure>\n\t\t<\/div>\n\n<p>FF: Bj\u00f6rgvin Richardsson, Gu\u00f0ni Bridde og Valdimar Har\u00f0arson, j\u00fan\u00ed 1991<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>HUMARKL\u00d3IN &#8211; Eftir Bj\u00f6rgvi Richardsson<\/p>\n<p>T\u00e6pum tveim m\u00e1nu\u00f0um eftir a\u00f0 vi\u00f0 st\u00f3\u00f0um saman \u00e1 tindi Karlsins var stefnan aftur sett \u00e1 \u00f3klifin tind. A\u00f0 \u00feessu sinni var \u00fea\u00f0 Humarkl\u00f3in \u00ed Heinabergsfj\u00f6llum sem var\u00f0 fyrir valinu. Heinabergsfj\u00f6ll eru austan Sk\u00e1lafellsj\u00f6kuls \u00ed su\u00f0austanver\u00f0um Vatnaj\u00f6kli og blasa vi\u00f0 fr\u00e1 H\u00f6fn \u00ed Hornafir\u00f0i \u00ed nor\u00f0vestri. Um tindinn vissum vi\u00f0 l\u00edti\u00f0, h\u00f6f\u00f0um a\u00f0eins s\u00e9\u00f0 af honum \u00f3lj\u00f3sa mynd. Vi\u00f0 vissum hvar hann var \u00e1 landakortinu. En vi\u00f0 vissum a\u00f0 hann var \u00f3klifinn. \u00dea\u00f0 var n\u00f3g.<\/p>\n<p><!--more--><br \/>\nF\u00f6studagskv\u00f6ldi\u00f0 21. j\u00fan\u00ed h\u00e9ldu fimm jeppar af sta\u00f0 \u00far Reykjav\u00edk. Vi\u00f0 vorum n\u00edu alls, allt f\u00e9lagar \u00ed hj\u00e1lparsveitinni utan lj\u00f3smyndararnir Sigur\u00f0ur og Hekla. \u00c1 Sk\u00e1lafellsj\u00f6kli voru sk\u00ed\u00f0amennirnir hengdir aftan \u00ed b\u00edlana og s\u00ed\u00f0an eki\u00f0 sem lei\u00f0 l\u00e1 inn j\u00f6kul. \u00dea\u00f0 voru \u00feokusl\u00e6\u00f0ur me\u00f0fram fj\u00f6llunum sem skiptu okkur svo sem ekki miklu m\u00e1li \u00fear sem lei\u00f0in var f\u00f6st inni \u00ed t\u00e6kjunum og \u00fev\u00ed eki\u00f0 eftir t\u00f6lvuleiknum. En \u00e1 \u00fats\u00fdnissta\u00f0num okkar \u00e1 br\u00fan K\u00e1lfafellsdals var l\u00edka sk\u00fdja\u00f0 og \u00fea\u00f0 var miklu verra m\u00e1l. En \u00fea\u00f0 var hvort e\u00f0 er komi\u00f0 kv\u00f6ld \u00ed \u00feetta. Eins gott a\u00f0 sofa og sj\u00e1 hvort morguns\u00f3lin myndi ekki f\u00e6la \u00feessar sk\u00fdjadr\u00e6sur \u00e1 brott.<\/p>\n<p>Fagur morgunn og allir dolfallnir yfir \u00fats\u00fdninu a\u00f0 vanda. \u00dea\u00f0 er sama hva\u00f0 ma\u00f0ur kemur oft \u00fearna, aldrei er n\u00f3g stara\u00f0. N\u00fa voru jepparnir or\u00f0nir fj\u00f3rir en fer\u00f0alangarnir jafn margir. Lei\u00f0in l\u00e1 upp \u00e1 Brei\u00f0ubungu, \u00e9g \u00fe\u00f3ttist viss um a\u00f0 \u00fea\u00f0an m\u00e6tti finna f\u00e6ra lei\u00f0 ni\u00f0ur a\u00f0 Humarkl\u00f3nni. Ekki vissum vi\u00f0 til \u00feess a\u00f0 nokkur hef\u00f0i fari\u00f0 \u00feessa lei\u00f0 \u00e1\u00f0ur. \u00dea\u00f0 haf\u00f0i veri\u00f0 reynt vi\u00f0 Humarkl\u00f3na \u00e1\u00f0ur, en \u00fe\u00e1 h\u00f6f\u00f0u menn komi\u00f0 gangandi a\u00f0 henni ne\u00f0an fr\u00e1. \u00dear sem vi\u00f0 vorum b\u00fanir a\u00f0 uppg\u00f6tva kosti jeppanna sem bur\u00f0ard\u00fdra, vildum vi\u00f0 sj\u00e1 hversu langt vi\u00f0 k\u00e6mumst \u00fearna megin fr\u00e1. Ekki \u00fea\u00f0 a\u00f0 sk\u00ed\u00f0in voru me\u00f0 ef allt \u00feryti. Vi\u00f0 vorum ofar sk\u00fdjum sem fylltu dalina alveg upp \u00ed t\u00f3lf hundru\u00f0 metra h\u00e6\u00f0. Framundan var sl\u00e9tt snj\u00f3brei\u00f0an og s\u00ed\u00f0an a\u00f0 fikra sig ni\u00f0ur me\u00f0 tindum og hnj\u00fakum a\u00f0 Humarkl\u00f3nni. Valdimar Har\u00f0arson var a\u00f0 venju me\u00f0 \u00ed f\u00f6r og l\u00fdsir \u00feessum hluta lei\u00f0arinnar \u00feannig:<\/p>\n<p>\u00dearna vorum vi\u00f0 st\u00f6dd, \u00ed ve\u00f0ri eins og \u00fea\u00f0 gerist best, sk\u00fdjum ofar \u00e1 Vatnaj\u00f6kli og \u00feeystum \u00e1fram \u00e1 me\u00f0an \u00feeir sem voru ni\u00f0ri \u00e1 jafnsl\u00e9ttu fengu a\u00f0 h\u00faka \u00ed rigningu. En gamani\u00f0 st\u00f3\u00f0 ekki lengi \u00fev\u00ed sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar keyr\u00f0um vi\u00f0 aftur ni\u00f0ur \u00ed \u00feokuna. \u00deegar eki\u00f0 er \u00e1 j\u00f6kli sem \u00feessum felst a\u00f0alh\u00e6ttan \u00ed sprungum sem leynast undir snj\u00f3num. Eftir stuttan akstur \u00ed \u00feokunni komum vi\u00f0 inn \u00e1 sprungusv\u00e6\u00f0i. Bj\u00f6rgvin, sem er manna reyndastur \u00ed akstri vi\u00f0 \u00feessi skilyr\u00f0i, var \u00e1 \u00f6flugasta b\u00edlnum og f\u00f3r hann fyrstur. F\u00f3r hann l\u00e9tt me\u00f0 a\u00f0 lei\u00f0a okkur \u00ed gegnum sv\u00e6\u00f0i\u00f0 og stuttu seinna vorum vi\u00f0 aftur komin \u00e1 lygnan sj\u00f3\u2026En \u00fe\u00e1 blasti vi\u00f0 okkur anna\u00f0 vandam\u00e1l. Framundan var \u00ferj\u00fa hundru\u00f0 metra l\u00f6ng brekka og \u00fea\u00f0 t\u00f6luvert br\u00f6tt. Aftur f\u00f3r Bj\u00f6rgvin \u00e1 undan til a\u00f0 tro\u00f0a sl\u00f3\u00f0 og ekki var \u00feess lengi a\u00f0 b\u00ed\u00f0a a\u00f0 hann hyrfi inn \u00ed \u00feokuna. \u00dearna t\u00f3k einn b\u00edllinn upp \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 bila svo nau\u00f0synlegt reyndist a\u00f0 skilja hann eftir \u00fear til vi\u00f0 k\u00e6mum til baka. Hinir tveir b\u00edlarnir silu\u00f0ust h\u00e6gt upp brekkuna en skyndilega heyr\u00f0ist \u00ed talst\u00f6\u00f0inni \u201c\u00e9g er b\u00fainn a\u00f0 finna hana.\u201d \u00dea\u00f0 var Bj\u00f6rgvin sem var kominn upp \u00far sk\u00fdjunum og a\u00f0 Humarkl\u00f3nni.<br \/>\n\u201cEr h\u00fan kleif\u201d kalla\u00f0i \u00e9g \u00e1 m\u00f3ti.<br \/>\n\u201cB\u00edddu bara \u00feanga\u00f0 til \u00fe\u00fa s\u00e9r\u00f0 hana.\u201d<br \/>\n\u00dea\u00f0 fyrsta sem \u00e9g sag\u00f0i \u00feegar \u00e9g kom upp \u00far \u00feokunni og s\u00e1 tr\u00f6llasm\u00ed\u00f0ina var \u201cGl\u00e6tan\u201d.<\/p>\n<p>Aldrei \u00feessu vant haf\u00f0i korti\u00f0 veri\u00f0 r\u00e9tt. \u00c9g haf\u00f0i fundi\u00f0 lei\u00f0ina a\u00f0 Humarkl\u00f3nni me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 fylgja \u00fev\u00ed sem m\u00e9r fannst l\u00edklegasta lei\u00f0in samkv\u00e6mt korti, me\u00f0 a\u00f0sto\u00f0 Loransins. \u00cd svarta \u00feoku, \u00e1 sl\u00f3\u00f0um sem ma\u00f0ur haf\u00f0i aldrei komi\u00f0 \u00e1 \u00e1\u00f0ur og enginn fari\u00f0 \u00e1 v\u00e9lkn\u00fanu \u00f6kut\u00e6ki, hef\u00f0i engan undra\u00f0 \u00fe\u00f3 eitthva\u00f0 hef\u00f0i valdi\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 ekki fyndist f\u00e6r lei\u00f0 allt a\u00f0 Humarkl\u00f3nni. En \u00fear sem vi\u00f0 st\u00f3\u00f0um \u00e1 br\u00faninni nor\u00f0an tindsins og horf\u00f0um yfir a\u00f0 honum, g\u00e1tum vi\u00f0 ekki anna\u00f0 en veri\u00f0 dolfallin yfir \u00feessari n\u00e1tt\u00farusm\u00ed\u00f0. Tindar Humarkl\u00f3arinnar eru \u00ed raun \u00fer\u00edr, s\u00e1 h\u00e6sti sem er \u00ed mi\u00f0i\u00f0 stendur stollta \u00e1ttat\u00edu metra yfir j\u00f6klinum \u00ed kring. Hinir tveir eru talsvert l\u00e6gri, en allir eru \u00feeir samtengdir me\u00f0 h\u00e1um og br\u00f6ttum sk\u00f6r\u00f0um. A\u00f0 vanda er bergi\u00f0 m\u00f3berg, en \u00fea\u00f0 sem gerir Humarkl\u00f3na s\u00e9rstaka, er stu\u00f0labergsgangur sem gengur \u00ed gegnum hana mi\u00f0ja. Er gangurinn heldur ve\u00f0ra\u00f0ri en m\u00f3bergi\u00f0 og myndar skoru sem n\u00e6r til toppsins og kl\u00edfur hann \u00ed tvennt. Myndast \u00fear eins og kl\u00f3 \u00e1 humri sem er einnkennismerki tindsins og sk\u00fdring \u00e1 nafngiftinni sem rakin er til danskra m\u00e6lingamanna.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 vorum samm\u00e1la um \u00fea\u00f0 f\u00e9lagarnir a\u00f0 tindurinn v\u00e6ri \u00f3\u00e1rennilegur. \u00cd besta falli nokkurra daga verkefni. En \u00fea\u00f0 er svo sem ekki \u00ed fyrsta skipti sem m\u00f6nnum l\u00fdst illa \u00e1 verkefnin fyrirfram, en komast svo a\u00f0 raun um anna\u00f0 \u00feegar \u00e1 reynir. Vi\u00f0 \u00e1kv\u00e1\u00f0um allavega a\u00f0 reyna. \u00c9g \u00fej\u00f6sna\u00f0i b\u00edlnum yfir nokkrar sprungur \u00ed vi\u00f0b\u00f3t og bakka\u00f0i svo eftir skafhrygg upp a\u00f0 Humarkl\u00f3nni. N\u00e6r en \u00ed \u00ferj\u00e1t\u00edu metra fjarl\u00e6g\u00f0 var ekki h\u00e6gt a\u00f0 komast, en str\u00e1karnir s\u00e6ttu sig vi\u00f0 \u00fea\u00f0. Me\u00f0 okkur Valda \u00e6tla\u00f0i Gu\u00f0ni Bridde a\u00f0 klifra a\u00f0 \u00feessu sinni. Vi\u00f0 r\u00f6ltum a\u00f0 veggnum \u00fear sem gangurinn byrjar \u00ed honum a\u00f0 austanver\u00f0unni. Valdi reyndi sig vi\u00f0 vegginn sem virtist vera kleifur. Eftir svona h\u00e1lft\u00edma s\u00e1um vi\u00f0 hinsvegar a\u00f0 \u00feetta myndi taka mun meira en daginn. Gu\u00f0ni reyndi n\u00e6st vi\u00f0 hrygginn a\u00f0 sunnanver\u00f0u en var\u00f0 fr\u00e1 a\u00f0 sn\u00faa flj\u00f3tlega. \u00c9g var n\u00e6stur \u00ed r\u00f6\u00f0inni og \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 sko\u00f0a tindinn betur \u00e1\u00f0ur en \u00e9g f\u00e6ri a\u00f0 klifra. Me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 br\u00f6lta upp klettafl\u00e1a og snj\u00f3skafla t\u00f3kst m\u00e9r \u00e1 au\u00f0veldan h\u00e1tt a\u00f0 komast upp \u00ed skar\u00f0i\u00f0 nor\u00f0an vi\u00f0 a\u00f0altindinn. \u00dea\u00f0 n\u00e6r svo h\u00e1tt a\u00f0 \u00ed raun var \u00e9g h\u00e1lfna\u00f0ur upp tindinn. N\u00e6stu metrar litu ekki illa \u00fat svo a\u00f0 \u00e9g fr\u00edklifra\u00f0i t\u00edu metrum ofar. \u00deetta virtist vera h\u00e6gt. \u00dea\u00f0 voru ekki nema \u00ferj\u00e1t\u00edu metrar eftir \u00e1 tindinn og me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hli\u00f0ra eftir syllu m\u00e1tti komast a\u00f0 stu\u00f0labergsganginum a\u00f0 vestanver\u00f0u, fara upp hann upp \u00ed kl\u00f3na og \u00fea\u00f0an \u00e1 sm\u00e1 st\u00f6llum upp \u00e1 topp.<\/p>\n<p>Str\u00e1karnir komu flj\u00f3tlega, \u00feungir mj\u00f6g af klifurb\u00fana\u00f0i. Vi\u00f0 settum inn nokkrar festur og \u00e9g hli\u00f0ra\u00f0i eftir syllunni. \u00deetta var allt frekar laust og h\u00e6ttulegt, en frekar au\u00f0velt. Flj\u00f3tlega komst \u00e9g inn \u00ed skoruna og str\u00e1karnir fylgdu \u00e1 eftir. N\u00fa var komi\u00f0 a\u00f0 \u00feeim a\u00f0 lei\u00f0a klifri\u00f0. Valdi f\u00e9kk hei\u00f0urinn og eftir a\u00f0 hafa rutt yfir okkur nokkru magni af lausu bergi, var hann kominn efst \u00ed ganginn.<\/p>\n<p>\u00de\u00e1 t\u00f3k vi\u00f0 klifur \u00ed f\u00fanu m\u00f3berginu upp til vinstri \u00fear til \u00e9g kom \u00e1 st\u00f3ra syllu austan megin \u00e1 kl\u00f3nni, um t\u00edu metra fyrir ne\u00f0an h\u00e6rri toppinn. \u00dear festi \u00e9g l\u00ednuna tryggilega svo Gu\u00f0ni og Bj\u00f6rgvin g\u00e6tu komi\u00f0 upp eftir henni. N\u00fa var a\u00f0eins eftir a\u00f0 klifra \u00feessa s\u00ed\u00f0ustu t\u00edu metra, en \u00feeir voru \u00feeim \u00f3kosti b\u00fanir a\u00f0 brattinn var um n\u00edut\u00edu og \u00ferj\u00e1r til fimm gr\u00e1\u00f0ur e\u00f0a a\u00f0eins meira en l\u00f3\u00f0r\u00e9tt. F\u00e9kk \u00e9g g\u00f3\u00f0f\u00faslegt leyfi f\u00e9laga minna til a\u00f0 lei\u00f0a \u00feessa sp\u00f6nn og reyndist h\u00fan t\u00f6luvert erfi\u00f0ari en virtist \u00ed upphafi. Um fimmt\u00e1n m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar st\u00f3\u00f0 \u00e9g fyrstur manna \u00e1 h\u00e6sta tindi Humarkl\u00f3arinnar \u00ed Heinabergsfj\u00f6llum.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 Gu\u00f0ni vorum sn\u00f6ggir upp til Valda. Toppurinn var s\u00e6milega r\u00famg\u00f3\u00f0ur fyrir okkur \u00ferj\u00e1, \u00fea\u00f0 var h\u00e6gt a\u00f0 setjast ni\u00f0ur og vir\u00f0a fyrir s\u00e9r \u00fats\u00fdni\u00f0. Vi\u00f0 vorum \u00ed hei\u00f0sk\u00edru og mj\u00f6g fallegu ve\u00f0ri, en a\u00f0eins hundra\u00f0 metrum fyrir ne\u00f0an okkur var hv\u00edt sk\u00fdjabrei\u00f0an eins og \u00e1lfahula yfir \u00f6llu umhverfinu. Vi\u00f0 vissum a\u00f0 beggja vegna vi\u00f0 tindinn voru skri\u00f0j\u00f6klar, en vi\u00f0 s\u00e1um a\u00f0eins anna\u00f0 slagi\u00f0 ni\u00f0ur til \u00feeirra undir sk\u00fdjabrei\u00f0una er h\u00fan lyfti s\u00e9r \u00f6rkotsstund fr\u00e1 fjallshl\u00ed\u00f0unum. Sannk\u00f6llu\u00f0 fjallaver\u00f6ld \u00fear sem tindar fjallanna \u00e1 hryggnum sem vi\u00f0 vorum \u00e1 og handan vi\u00f0 n\u00e6stu skri\u00f0j\u00f6kla st\u00f3\u00f0u upp\u00far sk\u00fdjunum og snj\u00f3brei\u00f0a Vatnaj\u00f6kuls a\u00f0 baki. Gu\u00f0na t\u00f3kst a\u00f0 tro\u00f0a l\u00f6ppinni inn \u00ed sprungu sem klauf tindinn a\u00f0 ofan \u00feannig a\u00f0 vi\u00f0 fengum \u00e1g\u00e6tis tryggingu fyrir okkur \u00fearna uppi. \u00c9g st\u00f3\u00f0 upp fyrir myndav\u00e9larnar, tyllti \u00f6\u00f0rum f\u00e6ti \u00e1 tindinn og st\u00f3\u00f0 r\u00f3lega upp. Tindurinn var mj\u00f6g laus \u00ed s\u00e9r og eing\u00f6ngu pl\u00e1ss fyrir einn f\u00f3t \u00e1 h\u00e6sta steini. \u00deetta vakti l\u00edtinn f\u00f6gnu\u00f0 f\u00e9laga minna, eitt feilspor og vi\u00f0 blasti \u00e1ttat\u00edu metra fall \u00e1n vi\u00f0komu ni\u00f0ur \u00ed j\u00f6kul. En myndirnar voru g\u00f3\u00f0ar, Siggi lj\u00f3smyndari kl\u00e1ra\u00f0i v\u00edst h\u00e1lfa filmu \u00e1 me\u00f0an \u00e9g st\u00f3\u00f0 upp.<\/p>\n<p>Eftir frasann okkar Valda sigum vi\u00f0 ni\u00f0ur. Vi\u00f0 komumst ni\u00f0ur \u00ed tveim sigum, fyrst ni\u00f0ur \u00ed skar\u00f0i\u00f0 \u00e1 milli tindanna og s\u00ed\u00f0an n\u00e1nast beint ni\u00f0ur \u00ed b\u00edl. Allt gekk eins og \u00ed s\u00f6gu, en degi var teki\u00f0 a\u00f0 halla og m\u00e1l a\u00f0 huga a\u00f0 n\u00e6tursta\u00f0. \u00dea\u00f0 l\u00e1 \u00fe\u00f3 ekki fyrir okkur a\u00f0 setjast a\u00f0 strax, \u00far \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 vorum komin \u00e1 Vatnaj\u00f6kul vildu menn nota fer\u00f0ina og sko\u00f0a meira. Vi\u00f0 \u00f3kum \u00fev\u00ed upp \u00e1 Brei\u00f0ubungu og s\u00ed\u00f0an allt austur \u00ed Go\u00f0ahn\u00faka. Mi\u00f0n\u00e6turs\u00f3lin s\u00e1 til \u00feess a\u00f0 halda okkur vakandi, s\u00edbreytileg rau\u00f0leit tilbrig\u00f0i lj\u00f3ss og skugga \u00e1 m\u00f6rgum fegurstu fj\u00f6llum landsins, Her\u00f0ubrei\u00f0, Kverkfj\u00f6ll, Sn\u00e6brei\u00f0 og Go\u00f0ahn\u00fakar auk alls nor\u00f0austur h\u00e1lendisins. Grilli\u00f0 var a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u sett upp og sverar steikur sn\u00e6ddar vi\u00f0 komu \u00ed Go\u00f0ahn\u00faka. Flj\u00f3tlega t\u00f3k \u00fe\u00f3 draumalandi\u00f0 vi\u00f0, suma dreymdi \u00f3farna tinda en a\u00f0rir byltu s\u00e9r me\u00f0 s\u00f3lbrenndar axlir.<\/p>\n<p>Heimfer\u00f0in var jafn lj\u00faf, \u00fea\u00f0 er f\u00e1tt yndislegra en l\u00ed\u00f0a \u00e1fram \u00e1 sk\u00ed\u00f0um \u00ed s\u00f3lskininu, \u00e1reynslulaust aftan \u00ed b\u00edlunum. Me\u00f0 \u00f6ll \u00feessi fj\u00f6ll fyrir augum me\u00f0 s\u00edbreytilega \u00e1sj\u00f3nu eftir sj\u00f3narhorni og s\u00f3largangi, getur fjallama\u00f0urinn ekki anna\u00f0 en gla\u00f0st \u00ed hjarta s\u00ednu yfir mikilfengleika n\u00e1tt\u00farunnar. Og \u00ed g\u00f3\u00f0ra vina h\u00f3pi er f\u00e1tt sem h\u00e6gt er a\u00f0 \u00f3ska s\u00e9r frekar. Varla nema von a\u00f0 erfitt s\u00e9 a\u00f0 b\u00ed\u00f0a eftir n\u00e6stu fer\u00f0, hvert sem h\u00fan n\u00fa ver\u00f0ur.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Lei\u00f0 upp \u00e1 Humarkl\u00f3 \u00ed Heinabergsfj\u00f6llum. A\u00f0al erfi\u00f0leikarnir felast \u00ed seinustu 10m e\u00f0a svo. Ca 5.8 en \u00ed lausu bergi \u00fear sem erfitt er a\u00f0 vita hverju \u00e1 a\u00f0 treysta. FF: Bj\u00f6rgvin Richardsson, Gu\u00f0ni Bridde og Valdimar Har\u00f0arson, j\u00fan\u00ed 1991 &nbsp; HUMARKL\u00d3IN &#8211; Eftir Bj\u00f6rgvi Richardsson T\u00e6pum tveim m\u00e1nu\u00f0um eftir a\u00f0 vi\u00f0 st\u00f3\u00f0um saman \u00e1 [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_bbp_topic_count":0,"_bbp_reply_count":0,"_bbp_total_topic_count":0,"_bbp_total_reply_count":0,"_bbp_voice_count":0,"_bbp_anonymous_reply_count":0,"_bbp_topic_count_hidden":0,"_bbp_reply_count_hidden":0,"_bbp_forum_subforum_count":0},"categories":[4],"tags":[],"acf":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/www.isalp.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/69647"}],"collection":[{"href":"https:\/\/www.isalp.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/www.isalp.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.isalp.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.isalp.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=69647"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/www.isalp.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/69647\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":69656,"href":"https:\/\/www.isalp.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/69647\/revisions\/69656"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/www.isalp.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=69647"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.isalp.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=69647"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.isalp.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=69647"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}