Hönnun Bratta

Home Forums Umræður Almennt Hönnun Bratta

  • Author
    Posts
  • #62157
    Helgi Egilsson
    Keymaster

    Sæl verið þið.

    Nú erum við að starta hönnunarvinnu á Bratta. Það er heilmargt sem þarf að ákveða og undirbúa áður en skálinn verður fluttur upp í Botnssúlur. „Brattanefnd“ hefur verið með smá umræður um þessi efni á lokuðum spjallhópi. Þeir sem eru áhugasamir um þessi efni, mega gjarnan senda tölvupóst á stjórn ÍSALP og þá verður þeim bætt í spjallhópinn.
    Það sem við erum að kasta á milli okkar er meðal annars:

    1) Hvernig er best að ganga frá klæðingu á húsinu og loftun?
    2) Hvernig verður gengið frá gluggum og hurð?
    3) Hvernig er gáfulegast að kynda skálann?
    4) Klósettmálin alræmdu – hvað er skynsamlegast í þeim efnum?
    5) Hvernig viljum við innrétta höllina? Viljum við hafa gistiaðstöðu í annarri álmunni og samkomu-/eldunaraðstöðu hinu megin? Viljum við gistiaðstöðu báðum megin? Viljum við eldhús báðum megin?
    6) Hvað viljum við hafa gistipláss fyrir marga?
    7) Hafa menn flottar útlitshugmyndir?

    Samhliða þessari vinnu stendur til að klára formlegan samning við Ferðafélagið um verkaskiptingu í skálasamstarfi okkar. Allir kraftar þegnir í það sömuleiðis og eru áhugasamir beðnir um að senda tölvupóst á stjórnina.

    #62159
    Helgi Egilsson
    Keymaster

    .

    #63647
    Helgi Egilsson
    Keymaster

    Opna hér með upp á nýtt fyrir umræður um hönnun Bratta!

    #63662
    Sissi
    Moderator

    Eitthvað að frétta af þessu? Hvernig eru menn að hugsa dæmið t.d. varðandi layout á hvoru rými um sig, eldhúsi, hitunarkerfi, klósetti og fleira?

    #63682
    Helgi Egilsson
    Keymaster

    Hugmyndin sem við erum að vinna með er að hafa aðra álmuna sem svefnálmu (eingöngu) og hina álmuna sem matar- og samkomuaðstöðu (eingöngu).
    Við erum að hugsa um olíukyndingu eins og er. Þingvallaþjóðgarður setti skilyrði um þurrklósett og við gerum ráð fyrir að annað herbergið í miðálmunni verði klósett, en hitt verði geymsla, t.d. fyrir eldavið ef það verður kamína.
    Við ætlum að reyna að halda í það útlit sem var á skálanum þegar hann var á Kaldadal eftir besta megni. Það þarf að klæða skálann með Alu-zink (bárujárni) og koma fyrir loftunartúðum í klæðningu.

    Endilega varpið öllum hugmyndum hingað fram!

Viewing 5 posts - 1 through 5 (of 5 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.