Re: svar: Trekant í Tríó

Home Forums Umræður Ís- og alpaklifur Trekant í Tríó Re: svar: Trekant í Tríó

#53491
Anonymous
Inactive

Menn eru alltaf að vanmeta Eilífsdalinn. Halda að allar leiðir þar séu að rigna niður í hlákutímum eins og þessum en ég skal láta ykkur vita að tíð eins og nú er gerir bara leiðirnar þar feitari. Ég var þar eitt sinn á ferð eftir nokkuð heitt vor 6. maí að reyna við einhverja ísleið sem seinna fékk nafnið Þylið sem var ennþá í ágætis ísaðstæðum. Nb.þá var þylið óklifrað. Ég og félagi minn sem höfðum ekki hugmynd hvaða þetta var eða hét, ákváðum að beila út þegar við komust ekki lengra en í hellinn góða sem flestir Þyl-farar kannast við.