Re: svar: Fyrirlestrar

Home Forums Umræður Almennt Fyrirlestrar Re: svar: Fyrirlestrar

#50726
1704704009
Member

Aðeins varðandi sjónarmiðin um kynninguna á Leifi Erni og Leníntindi, þá virðist sem tilkynninging berist Ísalp með ansi þröngum fyrirvara. Það er síðan álitamál hvort sýningin hefði verið send út í fjölpósti, eins og hún kom fyrir, enda var þetta öðrum þræði búð sem var að auglýsa vörur sínar. Ég nota helst ekki fjölpósta Ísalp í því skyni. Hvorki Útilíf né Útivera fengu slíka þjónustu undanfarin en hins vegar var sjálfsagt að segja frétt um hvað væri í gangi hjá þeim og eins var með 66 g og Leníntind. Sennilega hefði vel mátt senda fjölpóst um myndasýninguna eina og sér en skera þá kaflann um vörur verslunarinnar burt. Upp úr stendur að ég get tekið undir að kynningin á sýningunni hefði mátt vera eitthvað betri. Þetta skiptir e.t.v. litlu máli héðan af en allt í lagi að reifa þessi sjónarmið.