Uppbyggingarstyrkur ÍSALP er ætlaður fyrir uppbyggingu á klifursvæðum um land allt. Á hverju ári stefnir ÍSALP á að styrkja nokkur verkefni og forgangsraða eftir þörf. Sækja má um styrk upp að allt að 300.000 kr. en það má endurskoða ef mikil þörf er talin á. Hægt er að sækja um styrk hvenær sem er árs og verða umsóknir teknar fyrir jafnóðum.
Sjóðurinn styrkir eftirfarandi:
- Boltun og akkerissmíð á svæðum þar sem við á
- Aðgengismál (stígagerð, viðhald á vegum, bílastæðagerð)
- Skiltagerð fyrir klifursvæði
- Eldsneytiskostnað
ATH. Öll tilskilin leyfi fyrir framkvæmdum frá hlutaðeigandi aðilum þurfa að vera til staðar til þess að fá styrkinn greiddan.
Ef styrkur hlýst þá greiðir viðkomandi kostnaðinn, skilar inn kvittunum og fær styrkinn greiddan í kjölfarið.
Upphafleg upphæð í umsókn er viðmið sem getur breyst en ÍSALP áskilur sér rétt til þess að greiða einungis þá upphæð sem sótt var um eða nákvæma upphæð sem greidd var út. Það er gert til þess að kostnaðaráætlun sé sem nákvæmust. Sækja þarf sérstaklega um undanþágu frá þessu, fari kostnaðurinn fram úr kostnaðaráætlun.
Sótt er um hér: