Velkomin(n), Gestur
Vinsamlegast Innskráning eða Skráning.    Týnt lykilorð?

Telemark festivalið
(1 Að skoða) (1) Gestur
Allt sem við kemur rennsli á snjó.
Go to bottomSíða: 1
Efni: Telemark festivalið
#10035
Telemark festivalið Fyrir 4 mánuðum, 3 vikum  
Sæl öll sömul,

Allt er á fullu við að undirbúa Telemark festivalið í Hlíðarfjalli.
- Nóg af snjó er komið
- Afterski er komið, staður og stund auglýst við keppnina
- Telemarkhófið er komið staður og stund auglýst síðar í vikunni
- Hópferð á sunnudag upp á brún kl. 12:00
- Vegleg verðlaun í hús komið

Minni á búningakeppnina, bæði fyrir einstaklinga og lið.

Það hefur nú verið endanlega ákveðið vegna fjölda áskoranna að halda samhliðasvig keppni kvenna og karla.
En mig vantar hjálp við eftirfarandi:
6 sjálfboðaliða til að leggja brautina með mér á föstudagskvöldið eða ELDSNEMMA á laugardagsmorguninn. (halda á stöngum og slíkt)

3 sjálfboðaliða til að halda utan um keppnina sjálfa með mér. Dómar í marki, 2 sem skrá í keppni og draga keppendur saman og halda utan um hverja ferð. (Lasarusar og óléttir hafa oft tekið þetta að sér) Valli er sjálfkjörin í ræsinguna.

6 sjálfboðaliða til að taka niður brautina og koma stöngum upp í Strýtuskála strax eftir að keppni er lokið.

Áhugasamir sendi mér SMS í 8637724 til að staðfesta hjálp sína.
Ég sendi síðan SMS með góðum fyrirvar um stað og stund.
Má líka hringa en þá eftir kvöldmat, borða kvöldmatinn venjulega svona 18:30 - 19:00 nema manni sé boðið í mat þá oft er ég lengur að borða.

Kveðja Bassi og Böbbi sem á eftir að skrá sig...

Allir að skrá sig til að við sjáum ca fjölda í matinn
Jón Marinó Sævarsson
Jón Marinó Sævarsson
Þræðir: 272
Notandi ekki inni Click here to see the profile of this user
Aðeins innskráðir notendur mega skrifa á spjallborðið.
 
#10036
Re:Telemark festivalið Fyrir 4 mánuðum, 3 vikum  
Húrra!

Ég get tekið þátt í brautarlagningu verði hún á laugardagsmorgninum og líka verið með í að taka hana niður.

Gott að minna á skráninguna. Þeir sem ætla að skrá marga ( sem eru kannski ekki með aðgang að síðunni) geta sent póst á mig.

sveinborg (at) hotmail (punktur) com

sjáumst í herlegheitunum fyrir norðan!
Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir
Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir
Admin
Þræðir: 218
Notandi ekki inni Click here to see the profile of this user
Aðeins innskráðir notendur mega skrifa á spjallborðið.
 
#10040
Re:Telemark festivalið Fyrir 4 mánuðum, 3 vikum  
Bazzi -ég mæti spelkaður og hælheftur og get dundað við brautarlögn og tímavörslu.

Minni á að Nashyrningar eiga tvö pör af tandem skíðum -(Óli skelltu inn vídeóinu)
Við erum tilbúinir til að skella upp (ca 5 hlið) braut í Risastórsvigi
Það væri gott ef e-h geta lagt til bindingar og skíði 2m+ til að útbúa tvö pör til viðbótar.

k
Karl Ingólfsson
Karl Ingólfsson
Þræðir: 203
Notandi ekki inni Click here to see the profile of this user
Aðeins innskráðir notendur mega skrifa á spjallborðið.
 
#10041
Re:Telemark festivalið Fyrir 4 mánuðum, 3 vikum  
Þetta líst mér vel á.
2 Komnir

kv.
Bassi
Jón Marinó Sævarsson
Jón Marinó Sævarsson
Þræðir: 272
Notandi ekki inni Click here to see the profile of this user
Aðeins innskráðir notendur mega skrifa á spjallborðið.
 
#10045
Re:Telemark festivalið Fyrir 4 mánuðum, 3 vikum  
Verð við brautarlagningu Bassi, frágang og ræsingu. Mun þar að auki halda uppi vörnum við skipulag keppninar, þannig gamlar og nýjar tuðkeeellingar eru velkomnar.
Minni alla á að skrá sig endilega það nauðsynlegt vegna tölfræðilegra staðreynda sem létta umsjónarfólki alla yfirsýn á umfangi.
Aðeins innskráðir notendur mega skrifa á spjallborðið.
 
#10047
Re:Telemark festivalið Fyrir 4 mánuðum, 3 vikum  
Flott að sjá að undirbúningur er í fullum gangi fyrir Telemarkfestivalið. Eins og fyrra þá munum við Nashyrningar sjá um apré ski í Glerá með drengjunum í TAT.

Hér kemur upphitun fyrir sveifluna og þetta er engin smásveifla, 0,2 tonn.




kv.
Óli Júll
Aðeins innskráðir notendur mega skrifa á spjallborðið.
 
#10050
Re:Telemark festivalið Fyrir 4 mánuðum, 3 vikum  
Við Sigga Ragna mætum.

Komum einnig með einn orginal Norðmann með okkur.
Aðeins innskráðir notendur mega skrifa á spjallborðið.
 
#10051
Re:Telemark festivalið Fyrir 4 mánuðum, 3 vikum  
Bara að minna á þetta er 10unda skiptið sem Telemarkfestival er haldið.

Fann þennan link:

www.verksud.is/sidur/telemark/index.html

Hér er hægt að renna svona yfir sögu festivalsins fyrstu árin, bæði í máli og myndum.

Læt fylgja hvetjandi mynd úr stökkkeppninni, þegar telemarkarar voru ungir og endurnýjun í sportinu.

kv.
Bassi
Jón Marinó Sævarsson
Jón Marinó Sævarsson
Þræðir: 272
Notandi ekki inni Click here to see the profile of this user
Aðeins innskráðir notendur mega skrifa á spjallborðið.
 
#10052
Re:Telemark festivalið Fyrir 4 mánuðum, 3 vikum  
Dagskrá tíunda Telemarkfestivalsins hefur verið uppfærð inn á dagskrársíðum.

Fréttir af Telmark-hófinu á laugardagskvöldið...
2500 kr kostar inn á herlegheitin og skulu greiðast í reiðufé við inngang Íslandsbæjarins á Hrafnagili.
MUNA að skrá sig á hófið, annað hvort á dagskrársíðunni eða hjá sveinborg (at) hotmail (punktur) com
Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir
Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir
Admin
Þræðir: 218
Notandi ekki inni Click here to see the profile of this user
Aðeins innskráðir notendur mega skrifa á spjallborðið.
 
#10058
Re:Telemark festivalið Fyrir 4 mánuðum, 3 vikum  
Fjallið kjaftfullt af snjó geri ég ráð fyrir
Freyr Ingi Björnsson
Freyr Ingi Björnsson
Admin
Þræðir: 186
Notandi ekki inni Click here to see the profile of this user
Aðeins innskráðir notendur mega skrifa á spjallborðið.
 
#10061
Re:Telemark festivalið Fyrir 4 mánuðum, 3 vikum  
Sælir,

Já það er nógur snjór.
- og það er snjór í kortunum, þannig að það er ekki vandamálið.
sjá hér live cam

www.hlidarfjall.is/vefmyndavelar/

- búið að græja það að lyftur verða opnar til kl. 21:00 á föstudagskvöldið
- Samhliðasvigið verður á sama stað og síðustu 2 ár, þannig erum við mun sýnilegri.

Munið veglegir vinningar frá Fjallakofanum:
Jón Marinó Sævarsson
Jón Marinó Sævarsson
Þræðir: 272
Notandi ekki inni Click here to see the profile of this user
Aðeins innskráðir notendur mega skrifa á spjallborðið.
 
#10064
Re:Telemark festivalið Fyrir 4 mánuðum, 3 vikum  
Ekki nema 0,2??
Aðeins innskráðir notendur mega skrifa á spjallborðið.
 
#10065
Re:Telemark festivalið Fyrir 4 mánuðum, 3 vikum  
Með hvaða Swix áburði mælir þú?

Bleikum eða þarf heitari?
Aðeins innskráðir notendur mega skrifa á spjallborðið.
 
#10066
Re:Telemark festivalið Fyrir 4 mánuðum, 3 vikum  
Keypti gulan í dag hjá Vidda í Skíðaþjónustunni. Við Maggý erum sem sagt komin norður að taka út aðstæður. Fagna því sérstaklega að dvergar mæti á svæðið, en einhversstaðar sá ég talað um mittisdjúpan snjó :)

Minni á telemarkreglurnar frá því í fyrra...get póstað þeim hérna ef menn vilja. Þýskur ofuragi og Valli hinn ógnvekjandi er það eina sem dugar á móti gegndarlausu væli sem er jú hluti af keppninni.
Aðeins innskráðir notendur mega skrifa á spjallborðið.
 
#10077
Re:Telemark festivalið Fyrir 4 mánuðum, 3 vikum  
Ég held í bjartsýnina og neita að taka út klausuna um hið mittisdjúpa...
Kem með dverga til öryggis.


Vil annars minna fólk á að vera með reiðufé á sér fyrir aprés ski og veisluna um kvöldið.
Síðasti séns til að skrá sig í veisluna er á hádegi á föstudag.
Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir
Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir
Admin
Þræðir: 218
Notandi ekki inni Click here to see the profile of this user
Síðast breytt: 2010/03/11 22:57 By 0808794749.
Aðeins innskráðir notendur mega skrifa á spjallborðið.
 
#10079
Re:Telemark festivalið Fyrir 4 mánuðum, 2 vikum  
Smá tilkynning
BSO: Bifreiðastöð Oddeyrar býður okkur 15 % afslátt af taxta leigubíla út á Hrafnagil...
Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir
Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir
Admin
Þræðir: 218
Notandi ekki inni Click here to see the profile of this user
Aðeins innskráðir notendur mega skrifa á spjallborðið.
 
Go to topSíða: 1