Velkomin(n), Gestur
Vinsamlegast Innskráning eða Skráning.    Týnt lykilorð?

Hraundranga video
(1 Að skoða) (1) Gestur
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
Go to bottomSíða: 1
Efni: Hraundranga video
#9824
Hraundranga video Fyrir 1 dánuði  
Fyrir þá sem ekki hafa farið á Hraundranga og ætla sér ekki, að þá er hér 4.27min uppferð í boði. Fyrir hina sem nú þegar hafa kíkkt á Drangana að þá er þetta eflaust góð upprifjun á fínum degi. Þetta var skotið á hlaupum síðasta laugardag á pínu lítið point and shoot kvikindi, í gríðar góðu veðri. Klassísk leið á flottasta tind landsins.

Annars er það að frétta af toppnum að þörf er á nýjum veigum, þar sem að glundrið í núverandi plastpela er orðið annsi gruggugt þótt ekki sé meira sagt og ólystugt. Líklega fellur það á mig að gera úrbætur á því máli sökum tíðra uppferða, en var ekki búið að græja einhvern áletraðan og fínan stál pela hérna um árið ????

Skipti einnig út böndum og bætti við lás til að síga af í milli stansinum. Gult 7mm prussik, gott að vita fyrir þá sem hyggja á uppgöngu á næstunni að þetta er nýtt.

JB

Harundrangi klifinn 31 janúar 2010 - Video
Jökull Bergmann
Jökull Bergmann
Þræðir: 16
Notandi ekki inni Click here to see the profile of this user
Aðeins innskráðir notendur mega skrifa á spjallborðið.
 
#9825
Re: Hraundranga video Fyrir 1 dánuði  
Sweet vidjó!

Á eftir að kíkja á Drangann í vetraraðstæðum.

Varðandi jukkið og flöskuna...
Maður að nafni Olli lofaði að redda nýjum tappa á hinn ægifagra og áletraða pela sem ég og formaður skildm eftir á toppinum fyrir að verða tveimur árum.
Nú býst ég ekki við öðru en að Olli efni loforðið og skili pelanum á sinn stað þó langt sé liðið.
Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir
Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir
Admin
Þræðir: 199
Notandi ekki inni Click here to see the profile of this user
Aðeins innskráðir notendur mega skrifa á spjallborðið.
 
#9847
Re:Hraundranga video Fyrir 1 dánuði  
Ég hef nú sjaldan heyrt annað eins og að kalla þessar guðaveigar gruggugt sull. Ég hef nú bara aldrey smakkað annan eins eðaldrykk og þennann sem ég fann upp á Hraundranga í gær.

Kannski spilaði það eitthvað inní að ég var búinn að hafa fyrir því að dröslast þarna upp og fannst ég sko hafa fyllilega unnið fyrir sopanum.

kv
Jón H
Síðast breytt: 2010/02/08 20:30 By 2808714359.
Aðeins innskráðir notendur mega skrifa á spjallborðið.
 
#9849
Re:Hraundranga video Fyrir 1 dánuði  
Mér sýnist þú líka njóta sopans af hjartans innlifun.
Bragi Freyr Gunnarsson
Bragi Freyr Gunnarsson
Admin
Þræðir: 105
Notandi ekki inni Click here to see the profile of this user
Aðeins innskráðir notendur mega skrifa á spjallborðið.
 
Go to topSíða: 1