Hagnýtar upplýsingar um Tindfjallaskála og bókanir

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Skoða sem PDF skjalPrentvæn útgáfa

Upplýsingar um skálann
GPS hnit skálans :

63°46,140' N  19°40,780' V í dd°mm,mmm' WGS-84 (
63°46´27 N  19°40´38 V)

Bókun og verðskrá
Verð á gistinótt er kr. 1500 fyrir félaga Ísalp en 3000 kr fyrir aðra og greitt er fyrirfram með því að
leggja inn á reikning ÍSALP eða við afhendingu lykils.
Reikningsnúmer: 0111-26-001371
Kennitala ÍSALP: 580675-0509.
Þegar greitt er skal senda staðfestingu á gjaldkera Ísalp, sveinborg hjá hotmail.com 
Frítt er fyrir börn undir 12 ára.

Til að bóka má hringja í einhvern af ábyrgðarmönnum eða senda tölvupóst.
Við bókun skal gefa upp: fullt nafn, kennitölu, farsíma, fjölda gesta, komudag og brottfarardag.
Ábyrgðarmenn eru með lykla að skálanum og lyklar eru afhentir við staðfestingu á greiðslu.
Lykli skal skilað til ábyrgðarmanns að lokinni notkun.


Hér má finna upplýsingar um hvenær skálinn er laus.


Ábyrgðarmenn skála
Hálfdán Ágústsson Dyngjuvegi 10 gsm: 8659551 halfdana hjá gmail.com
Kristján Guðni Bjarnason Tómasarhagi 44 gsm: 8200412 kristjan.gudni.bjarnason hjá gmail.com

Veður
* Nýjasta veðurathugun hjá Veðurstofu Íslands.
* Nýjasta veðurathugun á farsímasniði.
* Veðurspá fyrir nærliggjandi veðurstöð (Sámsstaðir) frá Veðurstofu Íslands.
* Skýrsla um veðurmælingar í Tindfjöllum frá Veðurstofu Íslands 2007.

Til staðar


* Olíukamína
* Olíutunna ( staðsett fyrir utan skálann )
* Gashella og gas
* Pottar til að hita vatn og bræða snjó
* Leirtau og hnífapör fyrir 8
* Kojur fyrir 6 og svefnloft fyrir 4
* Tuskur og viskustykki og annar viðlegubúnaður til að þrífa eftir sig ( í plastkössum undir kojum )
* Ruslapokar
* Handsápa og uppþvottalögur
* Kerti og eldspýtur
* Kamar hefur verið smíðaður og er staðsettur um 50 metra frá skálanum
* Lítið gasljós, ATH gas ekki á staðnum


Hvað ber að taka með sér

* Gas fyrir ljós ( litlu kútarnir sem skrúfast á ljós/prímus))

gascolemangas1

* Ekkert vatn er í skálanum né í næsta nágrenni. Ef komið er að sumri er gott að stoppa við lækinn fyrir neðan neðsta skála (Tindfjallasel) og fylla á öll vatnsílát.
* Salernispappír


Fyrir brottför

* Þvoið áhöld og gólf (öll efni ættu að vera í plastkössum undir kojum)
* Lokið gluggum tryggilega, bæði í eldhúsi og á svefnlofti Sjáið til þess að kamarhurð sé lokuð.
* Strjúkið vatni úr gluggakistum ef eitthvað er
* Skrifið í gestabókina
* Slökkvið öll ljós
* Skiljið hvorki matvæli né rusl eftir í skálanum
* Lokið fyrir alla gaskúta.
* Takið tóma gaskúta fyrir helluborð með í bæinn og afhendið umsjónarmanni
* Lokið útihurðum (hurð og hleri) vandlega og læsið millihurð
* Ef einhverju er ábótavant skal nefna það við skil á lyklinum
* Takið allar óhreinar tuskur og moppur með í bæinn og skilið til umsjónarmanns.
* Skiljið engan nýjan borðbúnað eftir í skálanum
* Skiljið við skálann eins og þið viljið koma að honum
* Fyllið á olíutank í ofni með þartilgerðum brúsa (sjá leiðbeiningar með ofni)

Leiðbeiningar fyrir olíuofn

kamina

Á myndinni hér fyrir ofan er búið að merkja þá hluti sem þarf að hreyfa við til að kveikja upp í kamínu. Til að kveikja upp í henni þarf að gera eftirfarandi í þessari röð:

1. Opnið lok á olíutanki 1 og metið hvort nægileg olía sé til staðar. Athugið að mælirinn á geymi stendur á sér, bankið létt til að lesa af rétta stöðu. Vanti olíu skal sækja steinolíu úr tunnu við norðuhlið skálans, með litlum plastbrúsa sem er í skálanum(sjá mynd 10).Gætið þess að hella hvergi niður olíu á eða við ofninn
2. Snúið krana 2 einn hring rangsælis til að opna inn á blöndung.
3. Snúið krana 3 til fulls rangsælis til að opna inn á brunahólf.
4. Ýtið takka 4 niður til að auka rennsli. Haldið takka niðri í ca. 1 mínútu
5. Lyftið hellunni upp og athugið hvort olíupollur er kominn í brunahólfið . Einni má notast við gaumgat 7 til að fylgjast með rennsli olíu í brunahólf.
6. Dragið upp hnapp 5 þegar sést að olía er komin í brunahólfið. Vætið kveikinn (8) í olíu (sjá mynd 9) og tendrið. Stingið því næst logandi kveiknum í gat 6 á brunahólfinu.
7. Fylgist með að kveikurinn tendri olíuna og lokið hellunni varlega. Ef hvasst er og mikill trekkur í reykrörinu getur reynst nauðsynlegt að hafa helluna uppi meðan kveikt er upp.
8. Leggið helluna niður, og dragið kveikinn til baka þegar góður eldur er kominn í olíuna. Lokið gatinu (6) og stingið kveiknum í haldarann (8).
9. Stillið hita með krana 3. Slökkvið með því að skrúfa fyrir (snúa réttsælis ) krana 2 og 3 og toga upp takka 4.
10. Ef erfitt reynist að hita upp reykrörið og ná þar með upp trekk í ofninum getur reynst nauðsynlegt að halda niðri takka 4 í 1-2 mínútur og lyfta samtímis upp hnappi 5.
11. Athugið að ef hvasst er úti þá getur slegið niður í ofninn ef gluggi sem vísar undan veðri er opnaður. Við sömu aðstæður getur dáið í ofni ef rennslið (3) er mjög lítið.