Borði

Skálar Ísalp

Skálar Ísalp eru tveir,  Tindfjallaskáli og  Bratti.

Tindfjallaskáli sem stendur í land Fljótshlíðar.  Skálinn er staðsettur vestan við Tindfjallajökul, í 850 metra hæð yfir sjávarmáli og efsti skálinn í röð þriggja skála sem þar eru.  Skálinn var smíðaður 1941 en árið 2008 var skálinn fluttur í heilu lagi til Reykjavíkur og endurgerður í sinni upprunalegri mynd og fluttur til baka á heimslóðir að ári liðnu.  

Skálinn tekur 9 manns í rúm og er útbúinn olíukyndingu og gashellu.  Tindfjallaskáli er mikið nýttur á veturna og sækja Hjálparsveitir á suður- og vesturlandi í skálann til að halda námskeið og æfingar.

Nánari upplýsingar um Tindfjallaskála


Bratti er skáli sem stendur í Botnsúlum og hefur ekki fengið sömu athygli og Tindfjallaskála.  Hann er farinn að láta ásjá og skálinn ekki mikið nýttur.  ATH að Bratti hefur verið tekinn í bæinn til lagfæringar og er því ekki til reiðu.

Bratti í BotnssúlumTindfjallaskaliKort af Tindfjöllum (www.lmi.is)

Bratti í Botnssúlum (www.lmi.is)Kort af Kortin eru fengin úr kortagrunni Landmælinga Íslands.