Álið er málið WI 4

Leiðin er staðsett í Þórólfsárgili í Fljótshlíð, norðvestan við Þórólfsfell

Þórólfsárgljúfur

Keyrt inn Fljótshlíðina. Um er að ræða gil/gljúfur sem er skammt innan við innsta bæinn í Fljótshlíð, Fljótsdal. Gengið er inn gilið nokkur hundruð metra. Þá opnast lítið hliðargil á vinstri hönd þar sem sést í leiðirnar. Gengið upp brekku nokkra tugi metra

Klifrið hefst á þægilegu hafti upp á eilítinn stall. Því næst tekur við allbrattur kafli sem leiðinlegt er að tryggja, upp á annan og minni stall. Þá tekur við síðasti bratti kaflinn, með einkennilegri hreyfingu upp úr hinum eiginlega ísfossi. Lokakaflinn er mosa/gras/grjótspól upp úr leiðinni.

http://www.mbl.is/greinasafn/grein/1340024/

Myndaseríu úr leiðinni má finna á
http://gudmundurtomasson.photoshelter.com/gallery/20081130-Fljotshlie/G0000EdvTQ50i_Os/C0000cXfay2abrv4

Möguleikar eru fyrir erfitt mix í gilinu

FF: Stefán Örn Kristjánsson, Hlynur Stefánsson, Árni Þór Lárusson, Sveinn Friðrik Sveinsson, Freyr Ingi Björnsson, 21. jan. 2007

Klifursvæði Fljótshlíð
Svæði Þórólfsárgljúfur
Tegund Ice Climbing

Eyjafjöll

A. Seljalandsfoss
Það verður sennilega langt langt þar til Seljalandsfoss kemst í aðstæður en á milli hans og Gljúfrabúa myndast nokkrir stuttir og stífir fossar sem hafa verið klifraðir.

  1. Óli prik – WI 5+
  2. Amma dreki – WI 5+
  3. Skál – WI 3+

B. Paradísarheimt
Á sumrin er þessi foss bara pínu strik og nær oft ekki niður fyrir hamagangi í vindinum. Á veturna nær þessi veggur að frjósa og mynda frábærar ísleiðir.

Paradísarheimt snýr í suður og er nánast eingöngu í aðstæðum í lok desember og byrjun janúar. undantekningar geta verið á því en þá er ísinn mjög bakaður og mikið um grjót og íshrun.

Paradísarheimt er nefnd í ársriti Ísalp frá 1989 sem á bls 19 sem klassísk leið, ásamt góðri ferðasögu og lýsingu.

1. Vinstri Paradísarheimt – WI 4
2. Paradísarheimt (Upprunalega útgáfan) – WI 4
3. Hægri Paradísarheimt – WI 4
4. Skoran – WI 4
4a. Paradísarrif – WI 4+/5
5. Dreitill þráðbeinn – WI 5
6. Dreitill – WI 5+
7. Bjarta hliðin – WI 6
8. Afi – WI 5
9. Upphafið af paradís – WI 5
10. Canada dry – WI 5

C. Pöstin

Þekkt sportklifursvæði, sjá nánar á klifur.is. Ein leið hefur verið farin í hömrunum ofan við bæinn Hvamm. Mynd af leiðinni í aðstæðum væri vel þegin.

D. Holtsdalur
Nýtt svæði í mars 2017, ein leið kominn í dalinn. Aðal veggurinn snýr í norð vestur og fær því ekki mikla sól. Grófur og ógreinilegur malarslóði liggur inn eftir sandinum eftir að áin flæddi yfir bakka sína í kjölfar Eyjafjallajökulsgossins 2010. Stutt approach og möguleiki á 10-15 flottum línum.

  1. Góður mosi – M 5

 

J. Holtsós

Eitthvað af íslínum leynist í Holtsnúp ofan við Holtsós. Ein lína hefur verið skráð

I. Ingimundur

Klifrað hefur verið í dranganum Ingimundi síðan 1988 og er hann því orðinn þekktur á meðal klifrara á Íslandi. Árið 2002 birtist lítill leiðavísir um Ingimund í ársriti Ísalp sem tekur vel fyrir aðkomu að dranganum sem og leiðirnar á honum.

Allar leiðirnar eiga það sameiginlegt að vera dótaklifurleiðir og Stefán Steinar Smárason átti þátt í öllum þremur furmferðunum.

Gengið er upp við bæinn Steina undir Eyjafjöllum. Þar er gengið upp áberandi bratt gil, þar til komið er að eldrauðu berglagi efst í gilinu. Þar er hliðrað til hægri (austur) yfir í næsta gil. Þar ætti að lafa fram af smá klettahafti skipakaðall, óttist eigi, hann er bundinn í mjög fastann stein og að því gefnu að hann veðrist ekki til óbóta, þá er hann merkilega solid. Þar er annað og stærra klettahaft, sem ekki þarf að klífa, heldur hliðra aftur til hægri (austurs) yfir í næsta gil og upp bratta grasbrekku. Eftir það liggur leiðin í grófum gráttum bara upp hliðra aðeins til vintri (vesturs) aftur, þræða á milli hafta.

0. Sumarsnjór – 5.9
1. Gul lína: S fyrir Stratos – 5.8
2. Rauð lína: Mundi – 5.6
3. Græn lína: Orginallinn – 5.6
4: Z fyrir Zoidberg – 5.10a

E. Þorvaldseyri

Aðeins er vitað um klifur í Fellsfossi ofan við Þorvaldseyri.

 

F. Seljaland

Möguleiki á flottum línum í þröngum kverkum ofan við Seljavallalaug.

G. Hrútafell

Áberandi veggur úr þokkalega föstu móbergi. Ein leið er þekkt á veggnum, Sárabót Satans

H. Skógar

Ekki hafa verið farnar margar línur á Skógum, aðeins ein eins og er í spreyinu frá Skógafossi

 

Klakahöllin WI 5

Leið númer 64b. á mynd, hægra (austan) megin við Stynjanda

Byrjar í stórri hvelfingu austan við Þvergil.

Jón Haukur skrifaði greinina „Fjórtán feitir fílar á flugi, eða…“ um ferðina og birtist hún í ársriti Ísalp 1992 http://www.isalp.is/arsrit

FF: Páll Sveinsson, Guðmundur Helgi og Jón Haukur, 10. maí 1992

Klifursvæði Esja
Svæði Hrútadalur
Tegund Ice Climbing

Bekri M 4+

Leið númer 64a. á mynd, er á horninu við Klakahallarhvelfinguna, austan megin við Stynjanda

M 4/5 – WI 4

Leiðin er í Hrútadal í Esju og um klukkustundar gangur er upp að henni frá Eyrarfjallsvegi (460) í Miðdal.

Leiðin var klifin í fjórum spönnum.

#1 55 metrar, M4/5. Byrjað á klettum en endað á þunnum ís undir bröttu íshafti.
#2 50 metrar, WI 4. 20 metra íshaft og snjóklifur þar fyrir ofan.
#3 50 metrar, Snjóklifur með WI 3 hafti.
#4 25 metrar, snjóklifur sem endaði á hengjuklifri.

FF: Freyr Ingi Björnsson, Halldór Albertsson

Klifursvæði Esja
Svæði Hrútadalur
Tegund Mix Climbing

Þjóðleið 3 WI 3

Leið merkt númer 67.

Fyrst upp bratt íshaft, síðan eftir syllu uns komið er að breiðu gili. Opin leið.

Upprunalega útgáfan er sú sem er merkt með b. Nýrra afbrygðið er merkt með a. og var frumfarið í janúar 2017 af Matteo Meucci, Lorenzo Mazzotta og Sigurði Ragnarssyni.  Nýja afbrygðið er ca WI 4.

Fyrst farin: 21. nóv. 1983, Höskuldur Gylfason, Snævarr Guðmundsson.

Klifursvæði Esja
Svæði Hrútadalur
Tegund Ice Climbing

Hrútsauga WI 5

Leið númer 66c.

Hún er 100 m löng og byrjar nokkrum metrum austan við Þjóðleið 3. Fyrst eru 2 WI 4-5 ísspannir, síðan löng snjóbrekka sem endar í hengju. Þegar leiðin var fyrst klifin var hún mjög tortryggð.

FF: Páll Sveinsson og Guðmundur Helgi, 1992, 100m

Klifursvæði Esja
Svæði Hrútadalur
Tegund Ice Climbing

Þvergil WI 3

Leið númer 65

Ísfossinn neðst er aðal „vandamál“ leiðarinnar, en stundum hverfur hann í snjó þegar kemur fram á veturinn. Hægt er að fara vinstra megin við ísfossinn og getur það verið auðveldara.

Fyrst farin: 21. nóv. 1983, Ágúst Guðmundsson, Pétur Ásbjörnsson, Örvar Aðalsteinsson.

Klifursvæði Esja
Svæði Hrútadalur
Tegund Ice Climbing

Grjóthríð WI 3

Þriðja línan, lengst til hægri á mynd.
FF: Einar Rúnar Sigurðsson, Haukur Ingi Einarsson og Óskar Arason, 27. febrúar 2010

Í Svínafelli, í hlíðinni á ská austur frá sundlauginni, vestan við Myrkahöfðingjann. Leiðirnar eru í raun beint upp af bænum Víðihlíð. Þetta er línan í miðjunni af 3 línum sem koma þarna niður og virðist vera lengsta línan. Það er styttri 3 gráðu leið falin s.s. 100 metrum vinstra megin, og álíka löng leið með brattari byrjun 50 metrum hægra megin við Grjóthríðina. Nafnið kemur til af óskemmtilegri lífsreynslu, því við fengum grjót allt í kringum okkur þegar við vorum hálfnaðir upp leiðina. Sem betur fer meiddist enginn. Þegar sólin fer að skína á lóðrétta klettavegginn fyrir ofan þessar leiðir þá fer allt sem losnar þar uppi niður þessar trektar, svo það er ástæða til að vara við að klifra þessar leiðir ef heit sól á eftir að byrja að skína þegar líður á daginn.

Klifursvæði Öræfi, Vestur
Svæði Svínafell
Tegund Ice Climbing

Ólíver Loðflís WI 4

Leið númer 6 á mynd

Leiðin nær að vera í góðum skugga og myndast því hratt og helst vel í aðstæðum. Leiðin byrjar í næstu hvilft til hægri frá 55 gráðum N, hinum megin við rifið sem skagar út.

Ef lítill ís er í leiðinni, þá er búið að koma fyrir einum bolta við lítið þak ofarlega í leiðinni. Einnig er hentugt toppakkeri fyrir ofanvað þar sem ísinn endar og fyrir ofan það er akkeri sem hægt er að nýta til að síga úr 55 gráðum N eða til að koma fyrir ofanvaði í Ólíver loðflís.

Rétt hjá leiðinni er áberandi og djúpur hellir. Hægra megin við hellinn er, eftir því sem Ísalp best veit, leið sem vex sárasjaldan niður og gæti því verið með áhugaverðri mixbyrjun fyrir áhugasama. Í hellinum er líka langt og flott þak sem gæti hentað í mixleið í erfiðari kantinum.

FF: Jón Geirsson og Snævarr Guðmundsson 1987

Klifursvæði Esja
Svæði Búahamrar - 55 gráður N
Tegund Ice Climbing