Aukaaðalfundur og tvær myndasýningar þriðjudaginn 27.september

Ársreikningur síðasta árs verður lagður fram til samþykktar í salnum í Klifurhúsinu kl. 20 á þriðjudaginn. Að því loknu bjóða klúbbfélagar upp á tvær myndasýningar.
Annars vegar mun Ingunn Ósk Árnadóttir segja okkur frá ferð sinni til Wales í sumar þar sem hún tók þátt í alþjóðlegum klifurhittingi kvenna. Hins vegar munu Eysteinn Hjálmarsson og Ævar Ómarsson segja okkur frá nýlegri fjallamennskuferð þeirra til Íran, þar sem þeir klifruðu spennandi alpaklifurleið með íranska klifurlandsliðinu.
_MG_1795Sabalan