!! Varúð-Klassísk!!

Home Umræður Umræður Ís- og alpaklifur !! Varúð-Klassísk!!

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #45448
    Freyr Ingi
    Participant

    Pallborðsumræður: 10 XXX ísleiðir
    Nefndu 10 ísleiðir.
    Á spjallþráðum hafa spunnist umræður um bestu eða klassískustu leiðirnar.
    Nú ætlum við að taka þetta á hærra plan, hittast og kryfja málið. Sitt sýnist hverjum en nú er tækifæri til að útkljá málið.
    Höfum á þessu pallborðsumræðustíl. Nokkrir vel valdir, eða alla vegana sérvaldir setja kvöldið með því að kynna sínar tillögur í máli og myndum. Að því loknu gefst öllum hinum tækifæri til að tjá sig… þó að fólk sé beðið um að halda hæfilegri stillingu.
    Hvetjum ísklifrara til að mæta með eina, tvær myndir af sinni uppáhaldsleið og reyna færa fyrir því rök að hún eigi að komast inn á listann. Listann sem hefur ekki enn fengið nafn. Klassískar leiðir, bestu leiðirnar, flottustu leiðirnar, erfiðustu leiðirnar.
    Þarf kannski engan lista? Gengur ísklifur ekki út á að haka við á lista? Hver ákveður svona lista? Á kannski að setja málið í nefnd? Endalaust af spurningum en fá svör.
    Við viljum svör! Þess vegna þarft þú að mæta.

    #53285
    Freyr Ingi
    Participant

    Sko, þetta er ekki meira planað en svo að það sem við viljum fá útúr þessu er að eiga lista yfir ísleiðir (skíða- og klettaleiðir síðar) sem skemmtilegt er að klifra.
    Eftir að sá listi er kominn er hægt að sinna þeim almennilega, gefa út tópó með klassíkerum og þannig benda nýjum og gömlum á skemmtilegt klifur.

    Svo má nátturlega taka þetta lengra og gera lista yfir klassíkera í mismunandi gráðum.
    T.d

    WI3 – Spori í Kjós

    WI4 – 55° í Búhömrum

    WI5 – Þilið í Eilífsdal

    nota bene listinn er ekki endilega endanlegur svo að ekki nýta tækifærið og fara í fýlu ef að uppáhaldsleiðin þín er ekki á listanum.

    Óska eftir tillögum í listann og vonast til að sjá sem flesta á miðvikudaginn.

    Freysi

    #53286
    2806763069
    Meðlimur

    Klassík, topp 10, skemmtilegustu leiðirnar, erfiðustu leiðirnar, fallegustu leiðirnar! Það er hægt að skipta þessu í ótal flokka.

    Við Freysi formaður og Viðar ræddum þetta reyndar á löngum bíltúr um suðurlandsundirlendið í gær og ég held að helsta niðurstaðan hafi verið að gera lista af leiðum sem á einhvern hátt bera af þannig að þær séu eftirsóknaverðar að klifra. Ekki endilega að þær séu erfiðastar, þeir sem sækjast eftir svoleiðis þurfa engan lista til að vísa sér veginn!
    Þetta yrðu einfaldlega þær leiðir sem fá mann til að brosa, leiðir þar sem hreyfingarnar eru skemmtilegar, leiðir þar sem umhverfið ber af, leiðir sem koma manni skemmtilega á óvart – og já leiðir sem eru virkilega klassískar og hluti af skráðri og óskráðri klifursögu.

    Líklega var samt besta hugmyndin okkar í gær að gera sér flokk fyrir auðveldar leiðir. Þar væri kominn gagnabanki fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref með upplýsingum um nokkrar 5 stjörnu leiðir sem virkilega gaman er að klifra og nýtast vel til að bæta í reynslubankann. Svona framhald á lítill grein í síðasta ársriti.

    Hinn listinn þar sem allar leiðir (eða bara leiðir sem eru aðeins meira krefjandi) fara inn gæti svo nýst t.d. fyrir útlendinga sem koma í heimsókn og vilja fá greinargóðar upplýsingar um hvað er hægt að gera. Listinn hefði svo skemmtanagildi fyrir okkur hin og þau okkar sem eru leiða- og fjallasafnarar munu án ef krossa við listann í huganum.

    Ég sé enn fremur fyrir mér að þessir einstaklingar sem hafa verið öflugir í að gera leiðarvísa væru fengnir til að setja upp staðlað form til að skrá þessa lista niður á þar sem myndir og lýsingar á leiðunum koma fram á Íslensku og Ensku. Þetta væri svo aðgengilegt á netinu. Við hin sem höfum minni tölvu þolinmæði getum að sjálfsögðu lagt okkar af mörkum í texta gerð og með myndum.

    Það væri svo hægt að byrja með ca. 10 leiðir í hvorum flokk og gera það svo að árlegum event á heimasíðu Ísalp að kjósa um leið ársins. Sú leið gæti svo bæst við hópinn.

    Paradísarheimtin er annars alveg við það að detta inn, líklega klifranleg núna!
    Myndir úr bíltúrnum okkar má annars sjá hér:

    http://picasaweb.google.co.uk/ivarfinn/TtARsmRk#

    #53287
    Freyr Ingi
    Participant

    Þilið

    Grafarfoss

    Orion

    Ýringur

    Einfarinn

    Stekkjastaur

    Íste

    Stígandi

    Glymur

    Paradísarheimt

4 umræða - 1 til 4 (af 4)
  • You must be logged in to reply to this topic.