Mynd dagsins 29. júní.

Home Umræður Umræður Almennt Mynd dagsins 29. júní.

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #45282
    2005774349
    Meðlimur

    Mennirnir á myndinni eru ósköp viðundurslegir báðir tveir og veit ég ekki hverskonar samtökum þeir tengjast. Ég vil benda fólki á að varast þá. Þeir eru báðir tengdir boltun leiða sem teljast í hæsta máta vafasamar, ef ekki úthlaupnar.

    Hjalti Rafn.

    #48833
    Ólafur
    Participant

    Það er líka rétt að benda á að þetta er pilsner sem þeir halda á (< 2,25 prósent) ef einhverjir héldu eitthvað annað, enda báðir íþróttamenn.

    #48834
    Hrappur
    Meðlimur

    Úthlaup er það ekki eithvað sem markmenn gera ,svon rétt áður en enhver skorar hjá þeim? Getur ekki einhver fundið eithvað nafn á “ runout“ sem er ekki bein þýðing úr engilsaxnesku maður verður bara móður af öllum þessum úthlaupum sting uppá því þjála nafni ´“skógarferð“ sérstaklega þegar talað er um Vesturhorn mæli með sveðju og fíla byssu á rakkinn. Annars væri ágæt ef einhverjir málvísir menn bleyttu á sér höfuðið og kæmu með nokkur ný-yrði yfir helstu græjur okkar og athafnir þessi síða gæti orðið svona íslensk mál netsins.

    Ég þakka þeim sem hlýddu, góðar stundir.

3 umræða - 1 til 3 (af 3)
  • You must be logged in to reply to this topic.