Kamarholur, þverun straumvatna o.fl.

Home Umræður Umræður Almennt Kamarholur, þverun straumvatna o.fl.

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #45201
    1410693309
    Meðlimur

    Sá fyrir hreina tilviljun að út er komin bókin „Ferðamennska“ eftir Jón Gauta nokkurn Jónsson. Eftir fyrstu skoðun sýnist mér að bókin sé ekki skrifuð af algeru kunnáttuleysi á efninu, enda þótt kaflinn um kamarholur og persónulegan þrifnað hefði mátt vera ítarlegri og e.t.v. taka betur mið af vetraraðstæðum. Þetta má hugsanlega bæta við 2. útgáfu ritsins.

    Að öðru leyti sýndist mér margt koma fram í bókinni sem jafnvel gamlir refir og tófur til fjalla gætu grætt á. Þetta hlýtur a.m.k. teljast skyldulesning fyrir þá sem eru í einhvers konar leiðsögn og túrisma. Kaflinn um þverun straumvatna er t.d. lærdómsríkur.

    Ég hvet Ísalpara til að kaupa/kynna sér gripinn og koma miskunarlausri bókmenntagagnrýni sinni á framfæri hér á umræðusíðunni.

    Kv. SM

    #48766
    1705655689
    Meðlimur

    Góðar skýringamyndir eru á vef telemarkklúbbsins um kamarholur á jökli.

    kv. Bárður

2 umræða - 1 til 2 (af 2)
  • You must be logged in to reply to this topic.