Hvernig var á festivali?

Home Umræður Umræður Ís- og alpaklifur Hvernig var á festivali?

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #46749

    Jæja, nú er festivalið yfirstaðið og við sem höfðum ekki tök á að mæta að þessu sinni erum sólgin í að vita hvernig var og líka í að fá að sjá myndir. Þess vegna spyr ég einfaldlega, hvernig var og er ekki einhver með myndir til að sýna?

    #55270
    0111823999
    Meðlimur

    Þín var líka sárt saknað um helgina, sérstaklega þegar við fórum að setja upp nýja pottinn! Vantaði alþýðuverkfræðing ;)

    Persónulega skemmti ég mér geðveikt vel og það var mikið stuð í mannskapnum. Það voru 14 nýjar leiðir klifraðar í Öræfunum/Skaftafellssýslunum og einnig nokkrar endurklifraðar, nýjar leiðir voru klifraðar í Rótarfjallsgljúfri, Morsárdal og Fjaðurárgljúfri. Veðrið var með ágætis móti og má segja að við höfum fengið allar árstíðir um helgina, bestur var sunnudagurinn með stillu og -2°c!
    Snjóflóð hræddu líftóruna úr fólki í fyrra en grjóthrun þetta árið, og forðuðu 2 team sér í burtu á hlaupum á laugardeginum.

    Þetta er svona stutta útgáfan af helginni ;) og skráning þeirra hefst vonandi í dag. Ég tók að venju engar myndir svo ég bíð líka spennt eftir myndum, en ég veit fyrir víst að það var tekinn slatti af þeim auk þess sem Herocam var á svæðinu.

    Bk,
    HelgaM

    #55274
    2308862109
    Participant

    Frábært festival fannst mér. Fullt klifrað, góð stemning og frábært grill og með því í boði Íslenskra Fjallaleiðsögumanna.

    Takk fyrir mig

    Dóri

    #55277
    0304724629
    Meðlimur

    Já takk fyrir mig. Sannarlega þess virði að ,,skreppa“ á festivalið.

    Flott veður, góður hópur og sammála Dóra með grillið. Stelpurnar stóðu sig vel. Hápunktar Festivalsins voru:

    1. Hneggið í Dóra
    2. Pimp skeggið á Dóra
    3. Hnúturinn sem Dóri gleymdi að losa
    4. Þessi mynd af Dóra. Æi hún kemur ekki inn. Hvað er málið með að pósta myndum?

    [img][/img]

    Vídeó er í vinnslu. Tekur nokkra daga.

    Takk fyrir mig.

    kv
    rok

    #55278
    2205892189
    Meðlimur

    Dóri er mikill snillingur.

5 umræða - 1 til 5 (af 5)
  • You must be logged in to reply to this topic.