Hrútfjallstindar

Home Umræður Umræður Ís- og alpaklifur Hrútfjallstindar

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #46959
    2809774899
    Meðlimur

    Sælir félagar.

    Meira nýtt stöff úr öræfunum, ég og hr freskur fórum nýa leið á suðurfés Hrútfjallstinda.

    Leiðin byrjar þar sem postulínið og Scott byrjar, svo er snjóklifur upp í 1000m.
    Hún liggur milli scott og postulíns og endar á scott leiðinni uppá hrygginn, 2 spannir í plasteruð íshrönlsógeði

    1. Spönn 4gr 40m tortryggilegt íshröngl
    2. Spönn 4gr 50m íshröngl + snjór
    3. Spön 200m snjóklifur
    4. Spönn 4gr 60m ísklifur
    5. Spönn 100m snjóklifur
    6. Spönn 40m íshröngl lítið hægt að tryggja
    7. Spönn 40m íshröngl 1 ágæt skrúfa
    Hryggurinn uppí skarðið og þaðan á toppinn.

    Íshrönglið TD (4gr)
    FF. Styrmir Steingrímsson og Freyr Ingi Björnsson
    04.04.2012

    #57647
    2806763069
    Meðlimur

    Flottir, vel gert.

    Spurning hvort við séum að sjá einhverja uppvakningu í íslenskum alpinisma! Það væri nú gaman!

    Kannski svona eins og í þá gömlu góðu þegar maður einfaldlega fór í Skaftafell um páska og hitti þar allar hetjur landsins – það var skemmtilegt!

    kv.
    Sófacore.

    #57648

    Glæsilegt til lukku með þetta

    #57650
    Robbi
    Participant

    Vel gert piltar. Tími til kominn að gera eitthvað nýtt á þessu svæði. Bíð spenntur eftir myndum.

    robbi

    #57652
    Freyr Ingi
    Participant

    Setti inn myndir hérna:

    https://picasaweb.google.com/106200189876333931784/Paskar2012

    Þær eru bæði teknar af mér af Styrmi.
    Við vorum líka með GoPro vél en ég ruglaðist eitthvað á tökkunum og á núna svaka mikið af hljóðefni sem er tekið innan úr hettunni minni. Hélt að það væri slökkt en á henni semsagt þannig að minniskortið bara kláraðist eiginlega þar.

    #57657
    0503664729
    Participant

    Glæsilegt. Til hamingju með þetta.

    Veit að ég hljóma eins og Árni Alfreðs en langar að benda á að tindarnir heita Hrútsfjallstindar. Í öðrum þræði er fjallað um Skarðatinda sem heitir nú reyndar Skarðatindur.
    Það er gott að vita hvað maður er að fara uppá.

    JVS

    #57660
    AB
    Participant

    Vel gert, piltar!

    Það er skammt stórra högga á milli í alpínismanum þessa dagana og er það vel.

    Kveðja,
    AB

7 umræða - 1 til 7 (af 7)
  • You must be logged in to reply to this topic.