Hæðarmet á jeppa

Home Umræður Umræður Almennt Hæðarmet á jeppa

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #47098
    Sissi
    Moderator

    Þetta er svolítið gamalt en ég rakst á skemmtilega grein á jeppaspjall.is um hæðarmetið á jeppa 6.688 metra.

    http://www.jeppaspjall.is/viewtopic.php?f=47&t=346

    Ég skil raunar ekki í því að Kalli eða Árni eigi ekki þetta met, en það var amk. slegið á Súkku.

    Sissi

    #56962
    0801667969
    Meðlimur

    Já fróðleg lesning Sissi. Ýmislegt sem menn finna sér til dundurs. Eitthvað kvartaði kappinn um vandræði á klakabreiðunum. Skyldi hann ekki hafa heyrt um keðjur?

    Fyrir rúmlega hálfri öld (3. Jan 1958) komust menn á Suðurpólinn í þriðja skiptið. Þar voru á ferðinni nokkrir Ferguson traktorar og voru fyrstu vélknúnu ökutækin sem þangað komust.

    Þeir voru óbreyttir að öðru leyti en því að með lítilli fyrirhöfn var hægt að henda gúmmíbeltum utan á dekkin á þeim. Þegar færi var gott voru beltin tekin af og óbreyttir keyrðu þeir um Suðurskautið en beltin sett aftur á í þyngra færi.

    Stundum var keyrt í yfir 3000 m hæð og virkuðu bæði bensín og dieselvélarnar óbreyttar býsna vel. Reyndar langt síðan ég las Hillary og Fuchs.

    Hálfri öld síðar þá hamast menn hér heima á Klakanum að breyta jeppum nánast í traktora aftur til að komast sömu leið og engin heldur vatni.

    Kv. Árni Alf. (hugsanlegur hæðarmetshafi á traktor og fólksbíl á Klakanum)

    #56963
    Sissi
    Moderator

    Við fórum yfir 3700 metra hérna um árið í Pakistan minnir mig og þótti það ekkert tiltökumál á eldgömlum LC70, held að þeir keyri eitthvað hærra en það jafnvel. Bara smá fikt í olíuverkinu.

    Þarf annars ekki nauðsynlega að koma traktor á Hnjúkinn?

    Sissi

    #56966
    Gummi St
    Participant

    Sissi, það væri flott að koma gömlum Ferguson þarna upp!

4 umræða - 1 til 4 (af 4)
  • You must be logged in to reply to this topic.