Greining á „slysi/óhappi tengt ísskrúfum

Home Umræður Umræður Ís- og alpaklifur Greining á „slysi/óhappi tengt ísskrúfum

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #47360
    Jon Smari
    Participant

    Heil og sæl,

    Ég hef nú ekki tjáð mig mikið hérna inni hjá ykkur en fylgst lengi með ykkur.

    Fann áhugaverða grein varðandi frágang á ísskrúfum. Greining á „slysi/óhappi sem varð í Austurríki.

    http://coldthistle.blogspot.com/2011/01/be-attentive-when-placing-ice-screws.html

    Kveðja,
    Jón Smári

    #56302
    Robbi
    Participant

    Fínasta grein. Ég hef einmitt vanið mig á það að setja „typpið“ aftur niður þegar ég er búinn að setja inn skrúfuna einmitt til að koma í veg fyrir svona lagað.
    Robbi

    #56314
    0703784699
    Meðlimur

    Snilldar grein og takk f. linkinn….

    Ég sé business tækifæri í þessu? Erum við ekki með nóg af hæfum verkfræðingum sem myndu vilja sýna snilli sína og hanna hina fullkomnu ísskrúfu? Gæti komið af stað góðum snjóbolta….

    En ég hef alltaf vanið mig á það að setja inn typpið, ekki af því ég hugsaði út í þetta heldur bara af því mér fannst það eiga heima aftur á „rétttum“ stað.

    Annars gildir sú almenna regla alltaf í ísklifri…..ekki taka fall í leiðslu.

    Himmi

    #56321
    Freyr Ingi
    Participant

    Ekki það þeir séu með typpalausnina hjá Grivel en gætu samt verið komnir á bragðið með eitthvað hérna:

    #56324
    0703784699
    Meðlimur

    Í greininni á netinu er farið í Grivel speedy og þar fer einmitt greinarhöfundur í það að hann myndi frekar vilja, af tvennu illu, að línan hjá honum krækist í plast haldfangið á Grivel skrúfunni heldur en hörfðum járnhausnum á BD skrúfunni.

    Stevie alltaf flottur….

    kv.Himmi

5 umræða - 1 til 5 (af 5)
  • You must be logged in to reply to this topic.