Glymur

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #46075
    2806763069
    Meðlimur

    Ef það eru einhverjir sem hafa áhuga á að klifa Glym og þannig hluti þá leit ég inn í gilið á mánudaginn og það virðist allt vera fullt af ís innst í gilinu.

    #48402
    Anonymous
    Inactive

    Takk fyrir Ívar frábært að fá þessar fréttir. Glymsgilið er yfirleitt þannig að fyrir ókunnuga sjá þeir ekki mikinn ís í gilinu fyrr en þeir líta aðeins upp(langt upp)
    Er þá gengt inn gilið eða þarf að síga niður
    Olli

    #48403
    2806763069
    Meðlimur

    Gæti trúað að það væri jafnvel hægt að ganga, ég fór reyndar ekki langt þar sem ég hafði öðrum hnöppum að hneppa. En ég hef ekki séð svona mikinn ís á áni í ansi langan tíma. Þori samt ekki að veðja sálinni upp á það!

    #48404
    0309673729
    Participant

    Það þarf yfirleitt að skafa töluverðan snjó inn í gilið til að áin leggi. Ekki ólíklegt að það sé að gerast núna.

    kveðja
    Helgi Borg

4 umræða - 1 til 4 (af 4)
  • You must be logged in to reply to this topic.