Aðstæður

Home Umræður Umræður Almennt Aðstæður

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #44916
    0902703629
    Meðlimur

    Einhvern tíman þótti Ísalp-félögum nauðsynlegt að segja fréttir og fá fréttir af aðstæðum á landinu. Hér á eftir fara nokkur orð af aðstæðum hér fyrir norðan.

    Skíðadalur og Svarfaðardalur
    Á fimmtudagsmorgun voru engar aðstæður til skíðaiðkunar en ís í aðstæðum, efast þó um að það standi enn, þar sem hér sem annarsstaðar hefur verið um og yfir 10 stiga hiti undanfarna daga.

    Dalvík og nágrenni (utar í firðinum)
    Snjór frá toppi hæstu tinda niður í sjávarmál, sólbráð og frábært færi til vorskíðunar.

    Hvalvatnsfjörður, Kaldbakur og nágrenni
    Snjór frá toppi hæstu tinda niður í sjávarmál. Skinnaði frá afleggjara (Hvalvatnsfjarðar) við Grenvík á einhvern hnjúkinn við Leirdalsheiðina, topp-brekka í topp-aðstæðum. Sé mest eftir því að hafa ekki rifið gömlu góðu fjallhífina með þar sem sunnanáttin var nokkuð stíf, hefði getað tekið nokkra tinda og kannski jafnvel lent í einhverjum togaranum úti fyrir miðum svona í leiðinni. Austur hlið Kaldbaks er alveg hvít en aðeins minni snjór í vestari hluta Hvalvatnsfjarðar.

    Sjáumst í brekkunum,
    Kristín

1 umræða (af 1)
  • You must be logged in to reply to this topic.