Re: svar: aðstæður á suðurlandi

Home Umræður Umræður Skíði og bretti aðstæður á suðurlandi Re: svar: aðstæður á suðurlandi

#50889
2401754289
Meðlimur

Var með tvo á Snæfellsjökli í gær. Held að allur snjór á nesinu hafi skafið í leiðina upp og er hægt að skíða alveg niður í 200m hæð og kannski lægra fyrir þá sem nenna að vaxa skíðin eftir hverja ferð!!!
Bullandi snjóflóðaaðstæður hlémegin í „landslags gildrum“ og forðaðist ég allar stærri hlíðar sem voru í brattari hlutanum snúandi í suður áttirnar (ekki gleyma ýlinum, skófluni og stönginni ef þið farið að leika í snjónum!)
Skíðaaðstæður fínar en vindbarni snjórinn er frekar stífur sum staðar….íslenskt púður sem sagt
-7 til -13.3°C, mikið af hljóðinu WHOMPF (kann ekki íslensku þýðinguna á þessu orði) sem er vísir á MJÖG óstöðugt lag í snjónum…skoðaði það ekki vel en það var yfir leitt 5-10sm undir yfirborðinu.

Langloka en það er næstum glæpur að tilkynna ekki aðstæður þegar eitthvað er í gangi.

Einhver tilkynti bílinn minn líka til lögreglu sem ætlaði svo að senda björgunarsveit á svæðið…kannski góð regla að setja miða í framrúðuna með smá betu og kannski símanúmerum (þínu og einhvers sem veit hvar þú ert og hvað þú ert að gera)