Re: Eyjafjöllinn

Home Umræður Umræður Ís- og alpaklifur 55° Re: Eyjafjöllinn

#49342
2806763069
Meðlimur

Var að koma undan Eyjafjöllunum og það er fullt af ís. Paradísarheimtin í góðum aðstæðum og glitir í fallega fossa út um allt.
Annars fór ég á Eyjafjallajökul með Hauki litla skrópagemmling og stærðfræðiséní og þaðan er það að frétta að hægt er að skíða viðstöðulaust af toppnum og niður í bíl. Sem sagt góður dagur á fjöllum.

Svo skal ég reyna að vera góður í framtíðinni, það er bara svo fjandi erfitt og ekki nánda næri eins skemmtilegt.

kv. Skicore

P.s. ef þið farið upp þá eru rassbremsuförinn í brekkunni mér alls óviðkomandi og ég skil bara ekki í því hvernig þau komust inn á slóðina okkar.