
Skrifað af: Eiríkur Gíslason Sunnudagur, 01. febrúar 2009 09:13
Það var nokkuð snemma farið að horfa til vesturhluta landsins með staðsetningu fyrir ísfestival 2009 eftir vel heppnaðan leiðangur í Breiðdalinn í fyrra. Nokkuð var spáð í tvö svæði sem eru algjörlega óplægður ísklifurakur. Það er Gilsfjörður, Saurbær og Skarðsströnd annars vegar og Suðurfirðir Vestfjarða hins vegar. Nú liggur það fyrir að stefnt er á að gera Bíldudal að miðstöð festivals og reyna feta nýjar klifurlínur þar umhverfis.
Það liggur í hlutarins eðli að nokkur óvissa fylgir svona heimsókn á lítið þekkt svæði. Hinn langi armur stjórnarinnar hefur þó reynt að þreifa aðeins fyrir sér og það er að heyra á heimamönnum að hægt sé að finna ís á nokkrum svæðum þarna.
Hrikalegasta og augljósasta svæðið eru Ketildalirnir. Þetta er röð af dölum utan við Bíldudal og á milli þeirra eru flottir múlar með norðurvísandi snarbrattar hlíðar. Þarna er pottþétt að finna langar leiðir en spurning með möguleika í sportkantinum.
Jón Þórðarson á Bíldudal keyrði þarna um 20 janúar og tók myndir. Hann tók fram að frekar lítill ís væri á svæðinu þegar myndirnar voru teknar enda byrjaði árið á hlýindum.
Önnur svæði sem gætu haft potential eru s.k. Jötunaugu við Tálknafjörð sem á að vera norðurvísandi ísþil upp við fjallsbrún. Einnig er talað um að allskonar ísfrunsur og -fossar myndist í norðanverðri Kleifaheiðinni eins og Gummi nefndi á ÍsAlp spjallinu. Þetta gæti verið tilvalið verkefni fyrir sunnudaginn þegar mannskapurinn fer að mjaka sér heim. Svo er talað um að ís myndist víða á Barðaströndinni, sem er s.k. þrengstu skilgreiningu svæðið vestan við Brjánslæk. Það er allt suðurvísandi og því þurfa aðstæður að vera nokkuð góðar til að það komi inn. Þar er talað um að sé hellir með einhverju grýlukertaævintýri. Ég þarf að spyrja nánar út í staðsetningu á honum. Gæti kallað á aðkomu boltasjóðsins.







