Borði

Upplýsingar um snjóalög á norðurlandi

Nýverið gaf veðurstofan út almenna viðvörun sem hljómar svona: 
Vegna mikillar snjósöfnunar, ótryggra snjóalaga og nokkurra snjóflóða sem fallið hafa á Norðurlandi, er þeim tilmælum beint til útivistarfólks að vera ekki á ferð þar sem snjóflóð geta fallið. Einnig er fólki bent á að stöðva ekki farartæki sín á vegarköflum þar sem hætta gæti verið á snjóflóðum.

Þessi viðvörun er í eðli sínu frekar almenn og segir ekki mikið til um einstaka svæði eða brekkur, en það sem hún gerir aftur á móti er að vekja fólk til umhugsunar. Bæði vekur hún hinn almenna borgara sem alla jafna leiðir hugann sjaldan að snjóflóðum og hinn almenna fjallamann sem ætti að öllu jöfnu að hugleiða snjóflóð í hvert einasta skipti sem hann stígur fæti í snjóbrekku. 

Til að heyra aðeins betur um aðstæður og ástæður viðvaranarinnar hafði ég samband við snjóflóðavaktina sem sendi mér þennan pistil:

Hér er smá yfirlit yfir þau flóð sem við vitum af. Vert er að hafa í huga að þau eru aðallega nærri byggð eða yfir vegi þar sem okkar eftirlitsmenn fylgjast með eða Vegagerðin tilkynnir. Því vitum við lítið um flóð í fjalllendi því veður hefur verið vont og líklega ekkert um mannaferðir á fjöllum. Með tilliti til þess, ber að hafa allan vara á sér og nauðsynlegt að Ísalparar taki skyndigryfjur áður en haldið er upp eða niður brekkur. Eins væri fróðlegt og mjög vel þegið að fá fréttir af flóðum ef félagar verða varir við slíkt í síma 5226317 eða á  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Það byrjaði snjóflóðahrina í Fnjóskadal á föstudaginn 7. jan, þá féll stórt flóð á þekktum stað í Ljósavatnsskarði (Króklækjargil vestan v. Birkihlíð sem fór í eyði v. snjófl.hættu) og í Dalsmynni í hinu illræmda Grefilsgili. Daginn áður brast á með N-lægri átt, -10°C og talsverðri úrkomu í Eyjafirði svo færð tók að spillast, en fyrir var hjarn í lægðum og giljum og enginn nýr snjór. Síðan hefur verið NA-A hraglandi á svæðinu og á snjóflóðaviðvörun því einkum við hlíðar og gil sem eru í skjóli f. NA-A átt.
Hér kemur atburðarásin í grófum dráttum:

Fös 7.1: hvöss NV-N átt á svæðinu með talsverðri úrkomu en þó staðbundið, mikil ófærð í kringum Dalvík, Akureyri og í Hörgárdal, mun minni snjór inn í Eyjafj.sveit, Öxnadal og Siglufirði. Snjórinn var þurr og mikið kóf, fjöll voru mikið til ber áveðurs en mikill snjór í giljum og talsverður hlémegin í fjöllum, seinnipartinn hlýnaði að frostmarki á láglendi. Binding við hjarnið virtist góð í kringum Dalvík því þekkt snjóflóðagil voru full af snjó án þess að hlaupa. Þennan dag sáust hins vegar tvö ofangreind flóð austan Eyjafjarðar og var það í Ljósav.sk. meðal 3-4 stærstu flóða úr því gili sl. 50 ár. Ólafsfjarðarvegur milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar ófær og ekki mokaður v. snjóflóðahættu fyrr en á lau.morgni. Sáralítinn snjó setti í fjallið ofan Veisu og Veisusels í Fnjóskad. í þessari vindátt.

Lau 8.1: Mokstursmaður keyrði fram á 100 m breitt flóð á veginum skammt V Þverár í Dalsmynni sem virtist nýfallið, snéri við og sá vegur hefur ekki verið opnaður ennþá, því veður hefur verið leiðinlegt síðan þá.

Sun 9.1: NA-hraglandi engar fréttir af flóðum

Mán 10.1: Flóð lokaði veginum milli Veisu og Veisusels í Fnjóskadal, féll nærri syðri bænum. Snjóflóðavakt hafði samband við lögreglu á Húsavík til að vita hvort fólk væri í húsinu. Flóðið er úr þekktu gili. Mikið hafði snjóað þarna og í Eyjafirði í hægviðri um nóttina og fram á miðjan daginn. Þá fór að hvessa af NA og skall alveg saman. Snjósöfnun hefur því verið mjög hröð í gilið sem er í skjóli f. NA og A-átt.

Þri 11.1: Flóð hefur fallið á Veisusel sem fór í eyði sl. vor, braut niður vegg á útihúsi og rúður í íbúðarhúsi. VÍ hefur ekki vitneskju um að flóð sem falli norðan við bæinn nái bænum og suður fyrir hann, líkt og nú. Nokkuð stórt snjóflóð lokaði veginum um Ljósavatnsskarð í Sandvík þ.s. vegurinn gengur út í vatnið (þekktur staður). Lögregla hafði kvöldið áður varað við snjóflóðahættu á veginum.

Mið 12.1: Ég fór norður og mældi flóð í Fnjóskadal. ANA hraglandi og dimmviðri seinnipartinn. Talsverður snjór kominn aftur í gilin sem hlupu og mun meiri snjór inn í Ljósavatnsskarði í hlíðum (meira skjól þar f. NA-A átt.) Gryfja á láglendi við Hallgilsstaði í Fnjóskadal, tekin í skjóli f. A-áttinni gaf ekki góða niðurstöðu! Um 1 m vindfleki P, ofan á hjarni. Góð binding við hjarn (sem virðist reyndar vera yfirleitt á Norðurlandi) en á um 40 cm dýpi var 10 cm lag 1F með um 1cm P. CT brast við 4 og 5 högg í 1F ofan á þunna P laginu. Þetta geta auðvitað verið mjög staðbundnar aðstæður v. vinds, og því ekki gott að treysta því að gryfjan segi allt um aðstæður á svæðinu frekar en aðrar einstakar snjógryfjur!! 2 flóð ofan byggðar í Siglufirði, komu úr giljum í neðri hluta Hafnarhyrnu og stöðvuðust niður undir brekkurótum. Fjallið þar er annars mjög bert.

Fim 13.1: Stíf A-átt um nóttina, stór snjóflóð féllu á Skútudal í Siglufirði yfir hitaveitumannvirkin þar (gerist þó flesta vetur). A-hraglandi á svæðinu allan daginn. Veitustarfsmenn forðuðu sér af svæðinu v. snjóflóðahættu eftir að hafa vitjað dælustöðvanna. 2 flóð a.m.k. í Önundarfirði fyrir vestan á þekktum stöðum, frekar lítil.

Vonandi gagnast þetta ykkur við ákvarðanatöku um helgina!
Bestu kveðjur

Sveinn Brynjólfsson
f.h. snjóflóðavaktar

Veðurstofu Íslands

Þessi pistill er birtur hér bæði til upplýsingar og ekki síst áminningar. 

- Að vetrarlagi ferðumst við með hina heilögu þrenningu, snjóflóðaýli, skóflu og snjóflóðastöng. 

- Við skulum ekki vera feimin við að taka fram skófluna, grafa gryfju og spá í snjóalögum.
 
- Við skulum hlýða því sem í snjógryfjunni stendur. Það er betra að eiga möguleikann á því að koma bara aftur... og aftur.

- Ef við sjáum eða setjum af stað snjóflóð tilkynnum við það til Snjóflóðavaktarinnar. Því meiri upplýsingar sem þau fá því betri þjónustu geta þau veitt.

Góða helgi!

Freyr Ingi Björnsson

Mynd: Björgvin Hilmarsson