
Skrifað af: Páll Sveinsson Þriðjudagur, 15. janúar 2008 22:42
Ég Olli og Guðjón Snær fórum í Austurárdal 12 jan til að kanna hvort þar væri einhver klifur hæfur ís. Ísinn var í minna lagi en það var þó ein falleg lína í flottum aðstæðum. Leiðin kallast "Bláa leiðin" og var farinn fyrst af Guðmund Helga og Jón Hauk árið 2004.
Sjá má umfjöllun og myndir á http://www.isalp.is/art.php?f=70&p=172 En svæði er fyrsti dalur til norðurs þegar komið er niður af Bröttubrekku norðan megin og heitir sá Austurárdalur. Leiðirnar eru flestar í grunnri hvelfinu austan megin í dalnum og sést í toppinn á þeim frá veginum.





