
Skrifað af: Jón Viðar Sigurðsson Laugardagur, 20. október 2007 17:02
Á þessu ári hafa a.m .k. fjórir hópar frá Íslandi heimsótt eyjuna Kalymnos á tímabilinu maí til október, alls um 25-30 manns. Vinsældir Kalymnos fara stöðugt vaxandi enda aðstæður allar hinar bestu og klifur fjölbreytt. Auðvelt er að komast til Kalymnos. Hluta ársins er beint flug frá Íslandi til Dalaman (Tyrklandi) og Rhodos sem eru nærliggjandi. Þá er beint flug frá Kaupmannahöfn, London og fleiri borgum til Kos en þaðan er bara 20 mín sigling til Kalymnos. Hægt er að klifra á Kalymnos allt árið en besti tíminn er á haustin þegar hitinn er hagstæður, sjórinn hvað heitastur og verðlag á gistingu og öðru lægra. Flestir klifrarar heimsækja Kalymnos í október og þá getur orðið svolítið kraðak á vinsælustu svæðunum en þetta er þó ekki til vandræða þar sem boltaðar leiðir eru orðnar yfir 1000 á 42 svæðum. Úrvalið er mikið allt frá 3 upp í 9a+. Frá stuttum krakkaleiðum upp í fimm spanna leiðir. Við vorum í heildina 11 sem flugum til Kalymnos 5 október; Stefán S. Smárason og Krisitín B. Hermannsdóttir ásamt Smára, Sigrúnu og Styrmi, Björn Baldursson og Anna Karlsdóttir ásamt Baldri Karli og síðan Unnur Svavarsdóttir ásamt Magna Snævari og undirrituðum.















