
Skrifað af: Smári Stefánsson Þriðjudagur, 12. júní 2007 12:15

skellti mér með tveim norskum félögum á skíði á Tröllaskaganum 6. og 7. júní. Fyrri daginn var gengið inn Héðinsfjarðardal og upp á Almannahnakka og renndum okkur niður í þokkalegasta færi. Seinni daginn fórum við inn Ytrárdal, vestanmegin í Ólafsfirði, og upp hrygg austanmegin við fyrsta gilið norðan megin í dalnum. Þar var hið besta færi og komumst við nánast niður í dalbotn.







