Borði

Stardalur_

Í fyrrasumar hófst undirritaður handa við að endurgera og betrumbæta klifurleiðarvísinn fyrir Stardal.
Teknar voru nýjar myndir af öllum þilunum í Dalnum og þær unnar frá grunni út frá upplýsingum úr gamla leiðarvísinum frá 1986 (eftir Snævarr G og Björn V).
Einnig var upplýsingum safnað úr ótal ársritum eftir það og af frægu ljósriti frá Snævarri. Einnig veitti Páll Sveinsson og fleiri góðir menn upplýsingar.

Nýja leiðarvísinn er að finna á slóðinni:
http://www.rds.is/siggi/klifur/topo/index.htm

Þar er einnig að finna leiðarvísinn fyrir Gerðuberg.

Góða skemmtun!