
Skrifað af: Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir Þriðjudagur, 20. febrúar 2007 00:32
Héldum í ískönnunarleiðangur norður í land. Á laugardeginum var áð í Köldukinn þar sem fyrir voru Arnar, Berglind og útlenskur vinur þeirra. Freyr hóf leiðslu í Íssól en þurfti skjótt frá að hörfa vegna sívaxandi skotaárásar að ofan. Sama gerði Arnar og co. sem voru í leiðinni vinstra megin okkar.
Eftir þetta stutta gaman héldum við í fjöruferð og skoðuðum alla faaallllegu litina. Eftir ljósmyndastund og rabb ákváðum við að kíkja á einn af fossunum í flæðarmálinu. Úr varð að við klifum hann. Ca. 40m 3+/4- vel blómkálaður og skemmtilegur ís, en heldur blautur.
Ég læt hér fylgja með panorama af hluta svæðisins í Kinninni og einnig af Giljagaur




