Borði

Klifur á Ítalíu

Þegar makinn er ekki jafn spenntur fyrir klifrinu þá er málið sólarströnd með klettaleiðum í grennd. Ein slík er Cala Gonone á Sardiníu. Ágúst Kr. Steinarsson segir frá.

Ég bjó á Ítalíu sumarið 2006 og gafst þá loks tækifæri til þess að prófa nýja tegund kletta og var ég sérstaklega spenntur fyrir að prófa kalksteinninn.

Klifurfélagi minn, Örn, kom í heimsókn og þar sem við erum báðir frekar ferskir í sportinu var spenningur mikill fyrir fyrstu klifurferð til útlanda. Sjálfur hélt ég til í Flórens ásamt konunni og fór ég reglulega í gymmið þar.

En þegar Örn kom var farið í dagsferð í klifur og svo vikuferð til Sardiníu, Cala Gonone. En sá staður er af mörgum kallað mekka klifurs á Sardiníu og þá mikið sagt þar sem úrvalið er mikið á Sardiníu. Auk þess eru strendur Sardiníu sagðar vera þær fallegustu í Miðjarðarhafinu enda er sjórinn eins tær og hann getur mögulega verið.

Ferðin var hreint út sagt frábær og mæli ég eindregið með þessum stað og þá sérstaklega fyrir þá sem eru með maka eða fjölskyldu í eftirdragi sem er ekki jafn spennt fyrir klifrinu, þau geta þá haldið til á ströndinni eða sjónum sem er aldrei langt frá klettunum. Svo var líka kjörið að skella sér á ströndina þegar maður var útpumpaður af öllu klifrinu.

Hér koma nokkrar myndir frá Cala Gonone, klifrinu rétt hjá Flórens og gymminu í Flórens – Enjoy.

Kletturinn við Cala Luna ströndina. Hægt að klifra á honum á öllum hliðum og hægt að taka tveggja spanna klifur upp á topp. Myndin er tekin úr bát sem ferjar fólki á ströndina sem er við hliðin á.Ekki amalegt að hafa ströndina í næsta nágrenni, myndin er tekin af klettinum, eftir klifur. Konan var meðal sólargesta á ströndinnni og var það þrælfínt samkomulag, hún á ströndinni og við í klettunum, en hún hefur enn ekki fengið klifurbakteríuna í sig.Eftir góða upphitun lögðum við í þessa leið, Vampiri di vetro. Hún er, held ég, 5.10d og er hægt að fara tvær spannir. Aftur á móti náðum við því ekki þar sem við réðum ekki við crux í ca. 20 metra hæð, útpumpaðir og taugaðir. Annars er þetta skemmtilegasta klifurleið sem ég hef farið, mjög líkamlega krefjandi, með blöndu af undirgripum, hliðargripum, slabbi og yfirhangandi og akkúrat þegar maður þarf að vera úber tæknilegur þá var allt úthald búið.Þetta er einmitt efsti tvisturinn þar sem við komumst ekki mikið lengra. Cruxið fólst í að hanga í massífum slóper og halda áfram út í óvissuna og með góðan slaka á línunni. Bæði þreyta og hæfni stoppuðu okkur þarna en ljóst er að ég verð að fara þangað aftur til að klára kvikyndið.Útsýnið var ekki amalegt efst í klettinum, og sjórinn kristaltær.Svo fórum við á annan stað, helli sem var í smá göngufjarlægð frá bænum. Þetta er önnur leið sem ég gat ekki klárað en fannst alveg rosalega skemtileg. Ég vona að það sjáist að ég er að taka allverulega á því þarna en þessi fyrsti hluti var í raun hálfgert boulder problem, sem ég þó náði að klára. Framhaldið var síðan klifur áfram upp hellinn, sem var nánast algjörlega yfirhangandi. Það voru klifraðar fleiri skemmtilegar leiðir í þessum helli en því miður voru engar almennilegar myndir teknar af þeim gjörningi.Þetta er í Monsumano terme, klifursvæði í klukkutíma akstri frá Flórens. Leiðin heitir Dormidoro og er ca. 5.9 gráður. Þarna var öll línan nýtt þar sem að leiðin var hátt í 30 metrar á hæð - sem er þá það hæsta sem þessi nýgræðingur hefur farið.Loks eru hér nokkrar myndir af gymminu í Flórens, þetta er ca. 1/3 af gymminu þar. Tegund leiða er þó nokkuð frábrugðin því sem er hér í Klifurhúsinu og sakna ég margra leiða sem eru þar. Mig langar sérstaklega að vekja athygli á leiðinni sem er á bláa veggnum og brúnu þar við hlið, sjá betur á næstu myndSvona mix vantar algjörlega í innigym á Íslandi og vona ég að unnið verði að breytingum á því sem fyrst.Skemmtilegur tákrókur þarna. Næsta hreyfing er að smeigja hægri fæti upp fyrir og hýfa líkamann upp fyrir og bröltast áfram á litlum gripum.