
Skrifað af: Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir Föstudagur, 09. febrúar 2007 21:15

Nokkrar myndir af rölti mínu um fjallaskörð í Chamonix og rennsli þaðan niður.
Col de la Floria
Hækkun: 900 m
Rennsli: 1800 m
Mesti halli: 100m af 45°
Byrjað á skíðasvæðinu La Flégere og endað í litla þorpinu Le Buet.
Best er að taka sér far með nýju Index lyftunni í Flégere og halda síðan áfram með Floria diskalyftunni sé hún opin.
Þaðan traversar maður eilítið vestur.
Þarna skellir maður á sig skinnum eða þrúgum og stefnir upp í áttina að besta á staðnum, klettadrangnum sem stendur út úr hlíðinni.
Þegar nálgast fer dranginn verða aðstæður þannig að nauðsynlegt er að axla skíðin/þrúgurnar og eftir atvikum nota brodda.
Útsýnið af hryggnum ætti að vera flott enda leggur maður sjaldnast í svona rölt í slæmu skyggni.
Rennslið niður liggur ca í NA ofan í afvikinn dal þar sem engar hraðbrautir eru sjáanlegar.Fyrstu 100 metrarnir eru um 45° skv. gædabókinni. Þar er einnig ráðlagt að hnýta spotta í fyrsta mann vegna hættu á hengjur bresti en við sáum ekki ástæðu til þess í þetta skiptið.
Eftir stuttan brattan kafla tekur við yndislegt gil í skugga þar sem enn mátti finna leifar af púðri undangenginnar viku. Þegar úr gilinu kom tóku við rifskaflar sem þýddu einfaldlega mikinn hraða.
Eftir kramda baguette samloku í afdalnum voru þrúgur ólaðar og lagt í seinni brekkuna. Þarna var kominn steikjandi hiti og eitt skref áfram þýddi hálft afturábak.
Leiðin lá upp í skarðið Col de Berard. Þaðan rennir maður sér í suðurátt niður víðan dal sem þrengist niður í hálfgerða boardercross braut áður en komið er á leiðarenda.





