Skrifað af: Sigurður Tómas Þórisson
Sunnudagur, 10. desember 2006 23:15

Fjölmörg ísklifursvæðin á Íslandi eru ennþá ósnert. Nú í desember
urðu þau einum færri. Hér segir af nýju svæði innst í Fljótshlíð. Stungið
hefur verið uppá að halda næsta ísklifurfestival í Fljótshlíð. Er það
ekki málið?
Laugardaginn 9. desember sl. fórum við fjórir eldhugar í leiðangur úr Sódómu á Njáluslóðir til að gera eitthvað nýtt...
Freysi og Skabbi höfðu nefnilega séð glitta í ógurleg ísþil á leið sinni úr Tindfjöllum fyrir nokkrum vikum og sáu menn þá leið eina færa að hoppa hæð sína aftur á bak sem áfram í fullum herklæðum eins og Gunnar á Hlíðarenda og prófa á þessum hugsanlega ósnortna gimsteini.
Reyndar voru menn ekki 100% á því hvort búið var að klifra eitthvað þarna áður en menn hafa alla vega ekki farið hátt með það. Ef menn vita betur þá mega menn gjarnan bauna á okkur á spjallinu fyrir leti við upplýsingaöflun.
Freysi og Skabbi lágu eins og ormar á gulli á upplýsingum um þetta leyndardómsfulla svæði þangað til rétt áður en haldið var úr borginni. Ég og Sissi fengum náðarsamlega að fljóta með gegn því skilyrði að finnendurnir fengju fyrsta val á einhverjum flottum línum.
En nóg af suði og down to business. Hér koma helstu upplýsingar um svæðið.
Um er að ræða gil Marðarár sem fellur niður í Fljótshlíðina á móts við bæinn Fljótsdal. Þetta er næsta gil vestan við slóðann upp í Tindfjöll.
Á svæðinu er líklega efni í 10-15 leiðir, frá 3. gráðu og upp í eitthvað M-erfitt. Þennan stutta dag komust við ekki yfir nema þrjár augljósustu línurnar.
Ísaðstæður voru líklega svona lala þegar við vorum þarna. Greinilegt var að nokkuð hafði hrunið frá því mest hefur verið eftir langa frostakaflann um daginn. Spennandi að sjá hvernig svæðið er í feitum aðstæðum.
Ákveðið var að kalla svæðið Lyga-Marðargil og nýju leiðirnar Vanmat #1-3, þar sem allar voru þær töluvert erfiðari en leit út fyrir að neðan. :)
Aðkoma
Keyrið þjóðveg 1 (Suðurlandsveg) að Hvolsvelli, þaðan þjóðveg 261 inn í Fljótshlíðina. Rétt við innsta bæ (??) er beygt til hægri út af þjóðveginum inn á jeppaslóða sem liggur meðfram Markarfljótinu í átt að Tindfjallaslóðanum.
Farið er yfir nokkur lítil vöð, sem ættu ekki að vera fyrirstaða fyrir sæmilega búna bíla (varúð ef háar skarir hafa myndast á bökkunum). Að lokum er komið að malarplani (þar sem eru tvö hjólhýsi) og þar er beygt upp í hlíðina áleiðis upp í Tindfjöll.
Tindfjallaveginum er fylgt samsíða Marðaránni ca. 1-2km þar til vegurinn beygir til austurs en þá blasa aðalfossar gilsins við. Hægt er að leggja í móanum meðfram veginum.
Frá bílnum tekur svo við ca. 5 mín þægilegt labb upp á hæð austan við gilið. Þar fórum við í brodda og skröltum ofan í gilið og tók 10-15 mín í viðbót að komast að ísleiðunum. Athugið að bröltið ofan í gilið getur verið varasamt í snjó og klaka því neðan gönguleiðarinnar er nokkur hundruð metra skriða ofan við klettagljúfur.
Skorum við á alla ævintýragjarna að drífa sig austur og dreypa á nýjum línum í vetur. Mælst er til þess að nýjar leiðir fái hressandi heiti tengt myndum Quentin Tarantino.
Fjölmargar leiðir eru svo neðar í gilinu en eftir stutta leit gáfumst við upp á að finna gönguleið þangað. Hugsanlega mætti síga niður að þeim en það yrði sennilega alltaf vesen.
1) Royal with Cheese - McGóðborgari með osti
WI 4+, 20m (WI 5- í þessum aðstæðum)
9. des 06: Sigurður Tómas Þórisson, Sveinn Fr. Sveinsson
Vestasti fossinn í stóru gilhvelfingunni. Fórum upp funky-ass ostkennda línu hægra megin við miðju og enduðum á stórum stalli undir léttu 3. gráðu slabbi, sem hægt hefði verið að lengja leiðina um 10m með og enda uppi á toppi ef menn vilja.
Erfiðara afbrigði hefði verið lengst til vinstri og svipað erfitt okkar lengst til hægri.
Hugsanlega bara 4. gráða í feitum ís.
2) Pussy Wagon - Skapareiðin
WI 4+, 30m (WI 5- í þessum aðstæðum)
9. des 06: Freyr Ingi Björnsson, Skarphéðinn Halldórsson
Næsti stóri foss austan við Góðborgarann. Byrjar á slabbi en þrengist svo smám saman og verður brattari. Fórum svo 10m áfram upp slabbið í ísbunka til að síga niður. Hefði einnig verið hægt að enda uppi á toppi.
3) Trix are for Kids - Brellur eru fyrir börn
WI 4, 40m (WI4+ í þessum aðstæðum)
9. des 06: Freyr Ingi Björnsson, Sigurður Tómas Þórisson, Skarphéðinn Halldórsson
Miðjan á breiða fossinum austan við Skapareiðina. Byrjar á 5m 3. gráðu hafti, svo taka við 25m af síbrattari ís þar til syllu er náð. Þaðan hægt að fara nokkur afbrigði upp í síðustu ísbunkana.
Bratt og laust 10m grjóthaft fyrir ofan fossinn gerir erfitt að enda uppi á toppi í þessari leið.
Hressandi myndir er að finna á bröltsíðunni hans Skabba á slóðinni:
http://www.vonlausa.org/gallery/view_album.php?set_albumName=album58












