Borði

Vestrahorn - Fallastakkanöf - Hnappavellir

Því ekki að skella sér í klifur-road tour á Íslandi, líkt og menn stunda í útlöndunum. Það er af nógu að taka í amk. einn túr. Hér segir af íslenskum vegatúr.

Við Hróbjartur (Robbi) tókum okkur tvo frídaga fyrir Hvítasunnuna til að taka alvöru íslenskt klettaroadtripp.
Fórum því austur á Hnappavelli á miðvikudegi og gistum þar í rigningarsudda.
Daginn eftir var brölt aðeins í hífandi roki á Völlunum þangað til fór að rigna senni partinn.
Stóri dagurinn var svo á föstudeginum, þegar stefnan var sett á Saurgat Satans í Vestrahorni og í Orgelpípurnar í Fallastakkanöf ef tími gæfist.

Dagurinn var tekinn snemma (5:30) og brunað austur á Höfn. Fengum frábært veður og Hornið var hreinn unaður að brölta þennan dag.
Vorum akkúrat 5 tíma bíl-í-bíl og höfðum því hálfan daginn fyrir aðra spekt.
Drifum okkur að Fallastakkanöf enda bjartsýnir eftir góða ferð í Saurgatið og góðan árangur í Gerðubergi í maí.
En Orgelpípurnar flautuðu ekki okkar lag þennan daginn og við beiluðum eftir 4-5m klifur upp þennan furðulega 20m stromp í byrjun leiðar (erfiðasta 5.10 sem ég hef prófað :). Flenging la excellence...
Stefnum á að mæta aftur í Nöfina næsta sumar og tosast upp þennan stórglæsilega vegg...
Jæja, eftir þessi ósköp vorum við í rólegheitum á Hnappavöllum. Náðum 2 góðum klifurdögum og einum rigningardegi á mánudeginum áður en haldið var aftur til Sódómu.

Hér fylgja nokkrar myndir úr þessum túr okkar.

Vestrahorn séð að vestanVetrahorn séð úr bílnum hjá húsarústunum ofan fjörunnarRobertinu ungstirni leiddi fyrstu spönnina enda fór hann leiðina í fyrra og því sjóaður í að vaða saur LúsífersEftir töluverðan fönkíness í fyrstu spönn var hausinn kominn í þokkalegt horf. 2. spönn byrjar á smá lækkun að besta vegg leiðarinnarRobbi eltir 2. spönnina. Tvímælalaust besta spönn leiðarinnar: 25m af stífu, tæpu en aðallega stórskemmtilegu klifri (ca. 5.10a)Krúxið í lok spannarinnar var hressandi. Ég truflaði Lobsterinn með leiðbeiningum þannig að hann datt litla greyið...  :)Byrjun 3. spannar er flott líka en svo taka við furðulegir slabb-bólstrarÁ stansi eftir 3. spönn. Séð yfir sandana að NATO radarstöðinniRobbi eltir upp 4. spönn. Tæpt 5.9 slabbklifurSéð af stansi ofan 4. spannar í átt að EystrahorniRobbi leiðir 5. spönn. Mjög tæpt slabb með hressandi Á stans ofan 2. spannar á leið niðurRobbi sígur niður fyrir þakið ofan 2. spannarBrunnhorn í forgrunni - Eystrahorn í bakgrunniFallastakkanöf! Stuðlaberg verður ekki mikið flottara en þetta. Orgelpípurnar liggja upp mjóa strompinn hægra megin við miðja myndEftir að ég hafði fengið í bossann eftir nokkurra metra klifur prófaði Robertino Pípurnar en gekk ennþá verr en mér. Sáum okkar egó sökkva í djúpið en gaman að hafa prófað þetta samt. Verðum að endurheimta egóið næsta sumar og krúsa þarna uppValdi rotta klifrar Hamskiptin (5.12d held ég) við tjaldstæðið á HnappavöllumFínar pósurFlott leið þessi Hamskipti