Borði

Gerðuberg á Snæfellsnesi

Gerðuberg á Snæfellsnesi er þekkt fyrir flott stuðlaberg. Þar má finna fjöldan allan af klifurleiðum sem einkennast af lóðréttum sprungum. Gerðuberg er friðað og því eru boltar og fleygar bannaðir. Klettarnir eru lágir og því er svæðið fyrirtaks staður til að kynnast sprunguklifri.

Á eftirfarandi slóð gefur að líta fyrstu drög að leiðarvísi fyrir sprunguklifur í Gerðubergi
Vísirinn er á .pdf formi, sem allir ættu að geta opnað.
Ábendingar um atriði sem mætti breyta og/eða bæta eru vel þegnar.
Með von um að sem flestir nýti sér hið frábæra klifur sem er í boði í Gerðubergi!!!

http://www.rds.is/siggi/Gerduberg_topo.pdf

Hér eru svo nokkrar góðar myndir úr Gerðubergi:

Ágúst bröltir upp leið A1 bakvið frístandandi stuðulinnÁgúst leiðir leið A8Gerðubergsklifrarar að störfum hjá leið C6Haukur flubbi að leiða snilldarleiðina C1Leið C6, mjög skemmtilegt hornÉg að toprópa leið D2, strembin fingrasprungaÁgúst leiðir leið A1Robbi stúderar byrjunina á leið C11Gekk ekki allt of vel greinilega en það er í góðu því það er allt í lagi að detta í dótaklifri...   ...ef maður kann til verka!Boran á Hróbjarti skín bjart í leið C11Skabbi vippar sér fimlega upp prímaleiðina C6Þetta eru fallegar hreyfingar hjá snáðanum...Siggi Tommi paufast með tryggingar ofarlega í