
Skrifað af: Andri Bjarnason Laugardagur, 29. apríl 2006 19:42

Fyrir ekki svo löngu fann ég gamla filmu sem gleymst hafði að láta framkalla. Hans Petersen sáu um verkið og á filmunni reyndust vera grjótglímumyndir úr Öskjuhlíð, líklega frá sumrinu 2003. Hérna má sjá þá þokkapilta Steppo, Gumma og Valda leika sér að grjótinu og grjótið leika sér að þeim. Góður dagur á fjö.., uh..., ég meina í Öskjuhlíð.






