
Skrifað af: Andri Bjarnason Þriðjudagur, 18. apríl 2006 10:42

Það eru forréttindi að hafa fjall á borð við Esju í bakgarði borgarinnar. Þetta formfagra fjall býður upp á fjöldamargar leiðir af ýmsum gerðum hvort sem fólk sækist eftir göngu, brölti eða klifri. Hryggurinn austan við Þverfellshorn er ein af uppáhalds leiðunum mínum á Esju. Hann býður upp á skemmtilegt brölt og hægt er að velja sér miserfið höft til að klöngrast upp. Ég ók upp að Mógilsá í eftirmiðdaginn í gær, sól var á lofti en nokkuð hvasst og kalt. Eftir hressandi upphitunargöngu kom ég að hryggnum og tók af mér bakpokann til að ná í brodda og ísexi. Þá kom í ljós að platypus drykkjarapparatið hafði tekið upp á því að bregðast og 1 l. af Leppin sullast í dúnúlpuna mína. Klárlega ofmetin og mjög svo pirrandi reynsla. En áfram var haldið og hryggurinn klifinn á enda, rölt út að Þverfellshorni og svo skokkað niður. Svo ég vitni í einn frægan: ,,Góður dagur á fjöllum"








