
Skrifað af: Sigurður Tómas Þórisson Föstudagur, 17. febrúar 2006 09:45
Þurrklifur (dry-tool) mót var haldið í húskynnum HSSR fimmtudaginn 16.
febrúar sl.
Til leiks voru mættir helstu áhugamenn um ís- og klettaklifur og gripu alls 16 manns í vegginn (þó svo aðeins 11 hafi skilað stigablöðum).
Tókst keppnin afskaplega vel og var mikil stemmning bæði meðal áhorfenda (ca. 20 manns voru mættir til að horfa) og keppenda enda glæsilegt að berja tilþrif klifraranna augum.
Það var klifrað og það var öskrað og það flugu axir í gólfið...
...það var dottið og kýlt í andlitið og meira að segja endað á hvolfi með hnakkann í vegginn...
...en allir sluppu meira og minna óskaddaðir frá þessari rimmu við þyngdaraflið.
Herdís úr Bjsv. Ársæli mætti fyrir hönd sjónvarpsstöðvarinnar NFS og tók eitthvað af skotum af klifrinu. Vonum að þetta komi vel út í útsendingu á næstu dögum.
Úrslit mótsins eru kannski ekki aðal málið heldur var þetta meira til gamans gert.
Hér eru þó þær niðurstöður sem undirritaður náði að berja saman af stigablöðum og eigin hyggjuviti (látið mig vita ef ég hef misreiknað þetta eitthvað):
850 Róbert HSSR (hafði prófað flestar leiðirnar áður)
560 Hjalti Andrés HSG
545 Sigurður Tómas HSSR (hafði prófað flestar leiðirnar áður)
450 Björgvin Ársæli (hafði prófað sumar leiðirnar áður)
295 Skabbi (hafði prófað sumar leiðirnar áður)
265 Birgir Óskars
255 Gummi stóri
245 Eiríkur Gísla Ísfirðingur
240 Helgi HSSR
205 Steppó HSSR
180 Sissi HSSR
Aðrir sem klifruðu voru:
Hjalti Rafn
Kristín Martha
Ívar hardcore
Herdís Ársæli
félagi Gumma stóra
Aðrir létu sig dreyma á hliðarlínunni og má þar nefna: Olla, Gumma Spánverja og fleiri og fleiri...
Hér eru bestu myndirnar frá mér. Það væri vel þegið að menn sendu mér nokkrar myndir til að bæta hérna inn.
Hægt er að uploada þeim á ftp://www.rds.is/drop (anonymous login).










