Borði

Dry-tool

Þótt lítið sé um ís í nágrenni höfuðborgarinnar þarf ekki endilega að leggja öxunum. Nokkrir ísalpfélagar settu upp nokkrar "dry-tooling" leiðir í klifurveggnum hjá HSSR. Þann 16.feb geta áhugasamir mætt á Malarhöfða 6 og fengið að reyna sig við leiðina. Gott framtak!

Á dögunum ákváðum við nokkrir félagar að gera uppreisn gegn ísleysinu og bjóða þyngdaraflinu byrginn með ísöxi að vopni.
Niðurstaðan varð sú að við bjuggum til ný grip úr harðplasti og trébútum og brúkuðum í klifurvegginn á HSSR til þurrklifurs með ísöxum, s.k. "dry-tool" klifur.

Hugmyndin var að halda léttan hitting í formi dry-tool móts fimmtudaginn 16. febrúar n.k. kl. 20:00 á Malarhöfða 6.
Allir áhugasamir velkomnir að mæta með sín ístól, klifurskó og belti (að ógleymdum hjálmi) og prófa þessa snilld.

Hér eru nokkrar myndir af þessu klifri okkar til þessa:

Björgvin úr Ársæli spreytir sig á einni óræðri M leiðBjörgvin í ham á krúxinuRobbi í HSSR prófar fjarka (Danni í HSSR einbeittur að Danni seigur í fetlalausu þurrklifri. Skabbi fylgist með á hlýrabolnum...Það er mikil list að geyma axirnar á bringunni meðan skipt er um hendi eða klippt í boltaSiggi T í HSSR prófar eina óræða M-u í leiðslu. Skabbi tryggir, tilbúinn að fá öxina frá honum í hausinn að ofanHressandi í þessum bratta með þessi miðaldatól að vopniÁ krúxinuKlippingar eru alltaf skrýtnar í dry-tool - annar fílingur en í klettaklifrinu alla vegaBjöggi leiðir yfir krúxiðKlipping á hressandi staðRobbi hangir í tólunumGríðarlegar pósur í þessu......og laaaaaangar teygjur oft á tíðumÆtli hann sé að gera Prófa þakið aðeins. Eigum eftir að setja leiðir í það fyrir mótið þann 16. febrúar