Borði

Ísklifur II

Á dögunum var haldið Ísklifurnámskeið II á vegum Ísalp og Íslenskra fjallamanna. Guðmundur Freyr var þátttakandi á námskeiðinu.

Ísklifurnámskeið II 21. janúar 2006


Ísklifur II var haldið í Múlafjalli á laugardaginn, til leiks voru mættir um 14 nemendur ef ég man rétt, og var haldið í átt að múlafjalli.

Okkur var skipt niður á leiðbeinendur eins og í fyrra námskeiðinu, og var ég í hóp undir leiðbeiningu Jóns Hauks sem var mjög góður kennari og skemmtilegur félagi að klifra með.

Við fórum leið sem hetir annaðhvort stígandi eða rísandi ef ég man rétt.. þetta voru ein 3 höft sem við fórum upp og höfðum hvert sem eina spönn. Fínasta leið alveg og á maður eftir að þræða þessar leiðir þarna algjörlega næstu vikur...

í heildina var þetta bara mjög skemmtilegur dagur, við vorum 4 nemendur í hópnum og vorum við allir sáttir við daginn, fengum allir að taka vel á því, bæði andlega og líkamlega.. ef svo má að stöfum komast..

það eru líka einhverjar myndir á hinni síðunni minni, einnig frá síðustu helgi:
http://php.internet.is/gummistori

Hér erum við að nálgast leiðinaÍ 2. spönn... litlu spönninniViðar að klára 1. spönnHér er ég í 3. spönnverið að undirbúa niðursig