
Skrifað af: Sigurður Tómas Þórisson Mánudagur, 16. janúar 2006 11:23

Fórum sex saman í Eilífsdal sunnudaginn 15. janúar 2006. Með í för voru: Siggi Tommi, Robbi, Bjöggi, Skabbi, Herdís og Anna Sigga.
Þar var nóg af ís en því miður líka enn meira af snjó.
Ferðin inn að ísleiðunum tók rúma 3 tíma og leiðin heim rúma 2 tíma í mjög þungu færi. Allt í allt tók ferðin úr Reykjavík og heim rúma 15 tíma!
Mælum með skíðum og að sjálfsögðu snjóflóðaýli fyrir þá sem hyggjast leggja leið sína í dalinn á næstunni...
















