Skrifað af: Sigurður Tómas Þórisson
Föstudagur, 30. desember 2005 23:04

Sigurður Tómas kíkti á ísklifurleiðirnar í Kaldakinn um hátíðarnar. Engar voru aðstæðurnar en myndirnar sína glögglega möguleikana sem svæðið bíður upp á. Leiðirnar á myndum eru 100-200 m háar.
Almennt
Í nyrsta hluta Kaldakinnar (eða "Köldukinnar" eins og flestir segja það, þó eflaust sé það ekki alveg rétt) í Þingeyjarsýslu er glæsilegt ísklifursvæði.
Klettabeltið liggur milli Straumlækjar rétt norðan við bæinn Björg og endar í Náttfaravíkum á Skjálfanda.
Beltið er í Ógöngufjalli (?)
Á svæðinu eru tæplega 25 skráðar ísleiðir en enn eru margar línur ófarnar í Kinninni...
Meira...
Aðkoma
Frá Akureyri eru rétt rúmir 70km að bænum Björgum. Frá Reykjavík til Akureyrar eru 388km.
Þjóðvegur 1 er ekinn frá Akureyri áleiðis til Húsavíkur og Mývatnssveitar. Þegar komið er út Ljósavatnsskarð er beygt norður inn á þjóðveg 85 til Húsavíkur.
Þegar komið er um 15km út Kaldakinnina kemur vinkilbeygja yfir Skjálfandafljótið. Þaðan er beygt áfram til norðurs inn í Út-Kinn.
Þaðan er keyrt beint norður ca. 12km að bænum Björgum. Sú leið ætti að vera fær allt árið (nema kannski rétt eftir snjóbyl).
Frá Björgum er svo jeppaslóði sem liggur norður meðfram klettabeltinu niður að sjó og er hann fær litlum jeppum og jafnvel stærri fólksbílum þegar snjólítið er.
Ef slóðinn er ófær er ca. 2-3km gangur frá Björgum að fyrstu ísleiðunum.
Gisting
Gistingu er að fá á ferðaþjónustubænum (S: 464 3504,
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
), handan við Skjálfandafljótið (sjá kort síðar).
Einnig gæti verið hægt að fá svefnpokapláss í Ljósvetningabúð, nokkru sunnar í Kinninni.
Svo er auðvitað hægt að gista á Akureyri eða á Húsavík og keyra bara aðeins lengra.
Um ísklifrið
Síðar...
Tímabil
Eins og gengur á landinu fagra er engu að treysta með veðrið og ísmyndun. Því er litlu hægt að lofa um hvort aðstæður séu vænlegar í Kinninni á ákveðnum árstímum.
Þó er gott til þess að vita að það er nokkuð stöðugt temmilegt vatnsrennsli fram af klettabeltinu þannig að ef frost hefur verið á Norðurlandi í einhverjar vikur þá er ekki ólíklegt að útlitið sé bjart.
Ekki sakar að hringja í bændur á Björgum eða í Árteigi (örlítið sunnar) til að spyrjast fyrir um ísmyndun.
Verið er að safna upplýsingum um skráðar leiðir á svæðinu. Verður þeim upplýsingum komið í rétt form síðar.
Allar ábendingar sem gætu hjálpað við að gera þennan leiðarvísi betri eru vel þegnar. Vinsamlegast sendið slíkar upplýsingar á spjallið hér á isalp.is.
Eftirfarandi er því ekki tæmandi listi og ekki í 100% réttri landfræðilegri röð.
Ónefnd
WI 3, 1 spönn
27. desember 1996: Hákon Ásgrímsson, Helgi Borg, Jón Marinó Sævarsson
Sunnan við dalverpið í lágu hömrunum, nálægt Björgum.
Wish you were Here
WI 6+, ?m (?)
24. febrúar 2007: Ines Papert, Audrey Gariepy
Upp nokkur kerti í stóra slúttinu sunnan við Sólhvörf. Leiðin er tileinkuð Hari Berger, fyrrum klifurfélaga frumfarenda, en hann lést skömmu áður í ísklifurslysi.
Sólhvörf
WI 4, 3 spannir
Desember 94: Karl Ingólfson, Jóhann Kjartansson
Syðst í klettunum.
Captain Hook
WI4, M9/9+, ?m (boltuð), 2 spannir
27. febrúar 2007: Albert Lichtfried, Markus Bendler
Upp risaslúttið sunnan við Dönsku leiðina. Byrjar í 4. gráðu ís, síðan yfir í 15-20m íslaust klifur upp á stórt kerti (þar er gerður stans), þaðan upp klettinn í minna kerti, þar til komið er inn í aðal ísbunkann.
Flowers and Puffins
WI 3+, WI 6, ?m, 2 spannir
24. febrúar 2007: Ines Papert, Audrey Gariepy
Upp nokkur létt höft sunnan við Dönsku leiðina upp að stóra slúttinu. Þaðan upp 15-20m bratt kerti upp í aðal ísbunkana fyrir ofan.
Danska leiðin
WI 4+, 100m
Desember 1993: Tómas G Júlíusson, Karl Ingólfsson
Swimming in the Burning Soup
WI 5+, WI 6, ?m, 2 spannir
24. febrúar 2007: Ines Papert, Audrey Gariepy
Upp þunn kerti norðan við Dönsku leiðina og upp á stóra snjósyllu. Þaðan upp ca. 10m kerti og svo upp tvö minni höft upp á brún.
Tangó Kálfanna
WI 4+, 120m
24. febrúar 2001: Guðmundur Helgi Christensen, Jórunn Harðardóttir
50m af annari gráðu plús, 50m af fjórðu gráðu plús og að lokum 20m bratt
mosaklifur upp á brún. Gengið niður til suðurs. Lítill ís var í leiðinni. Hún er líkast
til heldur auðveldari í meiri ís.
Stekkjastaur
WI 5, 120m
25. desember 1996: Karl Ingólfsson, Tómas G Júlíusson
Stórt kerti, sem vex ekki alltaf niður. 25m lóðrétt fyrsta spönn
Girnd
WI 5, 130m
27. desember 1996: Hallgrímur Magnússon, Karl Ingólfson, Tómas G Júlíusson
Syðst í stóru leiðunum, norðan í horni sem skagar út úr miðju klettabeltinu. 3.-4. gráðu fyrsta spönn, síðan 2 brattar spannir.
Sýnishornið
WI 5, 80m
23. febrúar 2001: Páll Sveinsson, Þorvaldur Þórsson
Byrjað er lengst til hægri og klifrað upp til vinstri. Miðhlutinn er erfiðastur. Lítill ís var í leiðinni. Hún er líkast til heldur auðveldari í meiri ís.
Græðgi
WI 5, 70m
24. febrúar 2007: Einar Rúnar Sigurðsson, Róbert Halldórsson, Sigurður Tómas Þórisson
Sólóað eða farið á hlaupandi tryggingum upp létt slabb upp að sjálfum fossinum, þar sem tilvalið er að gera stans. Þaðað taka við brattir og krefjandi 30-40m þar til stór slabbsylla tekur við. Eftir sylluna eru svo ca. 20m upp á topp leiðarinnar.
Upprisa svínanna
WI 4+, 150m
23. desember 1996: Tómas G Júlíusson, Karl Ingólfsson, Jóhann Kjartansson
Milli Frygðar og Girndar (ónákvæmt)
E300
WI 5, 120m
28. febrúar 2001: Guðmundur Helgi Christensen, Jórunn Harðardóttir
Neðstu 70m eru brattir (86-87 gráður), restin dettur niður í 60-70 gráður. Lítill ís var í leiðinni. Hún er líkast til heldur auðveldari í meiri ís.
E222
WI 5, 120m
24. febrúar 2001: Páll Sveinsson, Þorvaldur Þórsson
Neðstu 70m eru brattir (86-87 gráður), restin dettur niður í 60-70 gráður. Lítill ís var í leiðinni. Hún er líkast til heldur auðveldari í meiri ís.
Sóðakjaftur
WI 5-, 135m
24. febrúar 2001: Jón Haukur Steingrímsson, Styrmir Steingrímsson
Fylgir ystu línunni til hægri upp á sillu. Tæp traversa (15m) á sillunni til vinstri út í megin-ísinn -- tryggt með spektru.
Gleymskan
WI 4, 130m
23. febrúar 2001: Jón Haukur Steingrímsson, Styrmir Steingrímsson, Karl Ingólfsson
Beint upp ísflákann. Einna bröttust um miðbikið.
Drífa
WI 4-5, 4 spannir
Desember 1994: Hallgrímur Magnússon, Karl Ingólfson, Tómas G Júlíusson
Byrjað á bröttum fossi í fyrstu spönn, þá koma tvær aflíðandi spannir eftir snjó og ísfláum. Síðasta og erfiðasta spönnin er í bröttum fossi.
Frygð
WI 5, 150m
Desember 1993: Hallgrímur Magnússon, Tómas G Júlíusson
Nærri lóðrétt utan 30m kafli af brattri snjó- og ísbrekku.
Miðnæturhraðlestin
WI 4, 180m
23. febrúar 2001: Helgi Borg Jóhannsson, Jón Gunnar Þorsteinsson
Auðveld í byrjun. Erfiðleikarnir liggja í 20m kerti um miðbik leiðarinnar. Nokkuð jafnbrött eftir það.
Flagan
WI 3, 150m
23. febrúar 2001: Sigurbjörn Gunnarsson, Stefán Páll Magnússon
Jafn bratti alla leið
Hlæjandi fílar
WI 4-, 160m
23. febrúar 2007: Arnar Þór Emilsson, Berglind Aðalsteinsdóttir, Demian A Schane
Skemmtileg leið sem er klifin í 3 spönnum fyrstu tvær mynda erfiðleikana og er spönn 2 heldur brattari. 3. spönn er þægilegt klifur upp a topp. Sigið er niður á V þræðingum.
Íssól
WI 4-, 170m
12. janúar 2007: Jökull Bergmann og Arnar Þór Emilsson
Önnur leið til hægri frá Flögunni, vinstra megin við stóra klettarifið.
Nokkuð brött 55m spönn í byrjun en svo smá slaknar á brattanum.
Klassískur ísbarningur og eflaust aðeins léttari í feitu ári með miklum ís. Í þessari ferð tók leiðin ekki skrúfur í fullri lengd nema að litlu leyti.
ATH! Þessi leið er undir einum stærsta snjóflóðafarveginum á svæðinu.
??
WI ?, ?m
23. febrúar 2007: ??
Syðri leiðin sem Skíðadalsliðið fór á föstudeginum (í sama fossi og hin)
Faðir og sonur (Vater und Sohn)
WI 3, 70m
23. febrúar 2007: ??
Nyrðri leiðin sem Skíðadalsliðið fór á föstudeginum (í sama fossi og hin)
Vörtusvínið
WI 3, 60m
24. febrúar 2001: Sigurbjörn Gunnarsson, Stefán Páll Magnússon, Jón Marinó Sævarsson
Þægileg 3. gráða. Seinni hlutinn er brattari en sá fyrri.
??
WI ?, ?m
24. febrúar 2007: ??
Vinstri leiðin sem Gummi og Arnar fóru efst í háu klettunum nálægt sjónum. Einnar spannar mjór foss.
??
WI ?, ?m
23. febrúar 2007: Guðmundur Freyr Jónsson, Arnar ?
Hægri leiðin sem Gummi og Arnar (og Helen til að byrja með) fóru í háu klettunum nálægt sjónum. Var efri spönnin farin?
Dramb
WI 5, 100m
24. febrúar 2007: Einar Rúnar Sigurðsson, Róbert Halldórsson, Sigurður Tómas Þórisson
Lengsti fossinn í stóru klettunum nálægt sjónum. Löng (60m+) tæknileg fyrri spönn upp að stórri slabbsyllu. Síðan tekur við vandasamt 4.-5. gráðu klifur í þynnri ís upp á brún.
Vantar að staðsetja þessar leiðir á myndum:
Ræsið
WI 3+, 120m
24. febrúar 2001: Jón Gunnar Þorsteinsson, Húnbogi Valsson
Liggur upp gilið fyrst í stað og síðan upp vegginn á hægri hönd. Létt fyrst í stað en öllu erfiðari um miðbikið. Léttist heldur þegar ofar dregur. Ísdrífan af forgöngumanni fellur niður í eins konar ræsi sem liggur meðfram klettaveggnum á vinstri hönd.
Ónefnd
WI 3, 150m
Febrúar 1994: Hallgrímur Magnússon, Karl Ingólfson, Tómas G Júlíusson
Leiðin liggur norðarlega í Kinninni. Aðal erfiðleikarnir felast í tveimur 10-15m íhöftum í leiðinni.
Limrusmiður
WI 4, 45m
22. desember 1996: Karl Ingólfsson, Húnbogi Valsson, Jóhann Kjartansson
Sunnan við Glassúr, þ.e. norður með sjó.
Glassúr (Glasdút)
WI 4+, 45m
23. desember 1995: Karl Ingólfsson, Jóhann Kjartansson og Hallgrímur Magnússon
Leiðin er norðarlega í klettabeltinu, nálægt sjónum.
Ónefnd
WI 3-4, 1 spönn
Desember 1993: Hallgrímur Magnússon, Elín Sigurðardóttir
Reki
WI 4, 60m
Vetur 1994-´95: Karl Ingólfson, Tómas G Júlíusson, Jóhann Kjartansson, Sigurður Sæmundsson
Nyrst á klifursvæðinu og mun vera einfaldur og brattur ísfoss.













