Borði

Klifurhöllin í Ratho

Jón Viðar og Stefán Smárason brugðu sér í innanhúsklifur til Skotlands á dögunum - og það ekki í neinn smá vegg. Sjón er sögu ríkari, kíkið á myndirnar. Nú er bara að finna sér ódýran flugmiða til Skotalands. Að sjálfsögðu er réttast að æfa sig fyrst í Klifurhúsinu í nokkrar vikur.

Fyrir skemmstu skruppum við Stefán Smárason til Skotlands í þeim erindum að hreyfa okkur aðeins í innanhússklifri. Stefnan var tekin á klifurhöllina í Ratho sem er einhver stærsta ef ekki sú stærsta í heimi. Við Unnur Svavarsdóttir komum reyndar við þarna og klifruðum aðeins í september 2004 en náðum bara að dekka brotabrot af klfurveggjunum. Þessi herlegheit nefnast Adventure Centre Ratho og voru opnuð fyrir tæpur tveimur árum. Yfirgefnar námur eru vinsæl klifursvæði í Skotlandi og svo var um dólerít-námuna í Ratho sem er rétt við flugvöllinn vestan Edinborgar. Einhverjum með geðveikar hugmyndir datt í hug að reisa stóra byggingu yfir hluta námunnar í þeim tilgangi að búa til klifurmiðstöð. Þetta varð að veruleika í lok árs 2003. Megin áherslan er á klifur en í húsinu eru einnig íþrótta- og tækjasalir, ráðstefnusalir, veitingastaður, kaffihús og útivistarverslunin Tiso þar sem áhersla er lögð á mikið úrval af klifur-glingri. Við eyddum þremur dögum í klifur og hefðum vel getað hugsað okkur að vera lengur ef fingurgómar og okkar gömlu búkar hefðu þolað meira. Jú svo var víst einhver vinna heima sem beið. Klifurmiðstöðin í Ratho er vægast sagt sérstök. Hún er byggð yfir námu þar sem veggirnir eru um 30 m háir. Náttúrulegir veggir eru að hluta til innanhúss og hægt er að klifra úti við hlið hússins. Innandyra eru vandaðir klifurveggir sem reistir voru af Pantarai og er samanlagt flatarmál þeirra yfir 2500 m2. Þrír megin-klifurveggir eru í húsinu. Einn er mest fyrir byrjendur, námskeið og þá sem vilja klifra í top-rope. Þá er gríðarstór veggur sem er fyrst og fremst fyrir leiðsluklifur og loks er "keppnisveggurinn" sem er þó ávallt opinn. Sá hefur að geyma margar erfiðar leiðir sem breytast við hverja keppni. Ekki má gleyma grjótglímunni en í miðjum salnum eru þrír hnullungar í yfirstærð sem bjóða upp á góða grjótglímu og upphitun fyrir veggina. Þá er einnig stórt grjótglímusvæði undir kaffihúsinu. Kaffihúsinu er stýrt af frönskum öðlingi sem býður upp á alvöru Hnappavallakaffi ef vel er farið að honum. Klifursalurinn er gríðarstór og stórt opið svæði á milli veggja. Dagsbyrtan sér alfarið um lýsingu á daginn og það ásamt stærðinni og náttúrulegum klettaveggjum innandyra gerir það að verkum að það er utanhúss-fílingur í klifrinu. Eitthvað virðist aðsókn vera dræm ef marka má þessa þrjá daga sem við vorum í höllinni (fim-lau). Þannig áttum við t.d. húsið út af fyrir okkur nokkra tíma á laugardagsmorgni! Þá lentum við aldrei í að bíða eftir að komast í leiðir sem okkur langaði til að klifra. Staðsetningin er kannski ekki nógu góð fyrir innheimska. Undir rjáfri yfir klifursalnum er "sky-walk" adrenalínbraut fyrir ævintýragjarna en hún er í 30 m hæð. Hæstu klifurveggirnir eru 28 m háir en fjölmargar leiðir eru slúttandi eða hliðranir sem gerir það að verkum að 60 m línur rétt duga. Við getum hiklaust mælt með klifurhöllinni í Ratho fyrir þá sem vilja smá tilbreytingu frá annars ágætu klifri í Klifurhúsinu og Björkunum. Það tekur bara um einn og hálfan tíma að fljúga til Glasgow og þaðan er um 40 mín akstur til Ratho. Heimasíðan er www.adventurescotland.com.

Vá maður, þetta er geðveikt!Jæja, best að gera sig kláran. Aðal leiðslu-veggurinn í baksýn.Stebbi hitar upp í grjótglímumolunum í miðjum salnumBest að kíkja á þessar leiðir, 2 m búnir og 26 m eftir. Var ekki línan örugglega 60 m?Undirritaður í grjótglímunniStebbi glímir við Meiri grjótglíma undir kaffihúsinuFlottur veggur. Þúsundir (eða tugþúsundir) af festum og enginn að klifra!Íslenskur dordingull í Skotlandi. Keppnisveggurinn í baksýnKennslu- og æfingaveggurinnAdrenalín-brautin yfir klifursalnumKlifurmiðstöðin í Ratho