Borði

Sólheimajökull

Ég er búinn að vera að fara nokkrar ísklifurferðir um helgar, aðallega í Sólheimajökul uppá síðkastið til að hita sig upp fyrir ísklifurnámskeiðið sem er alveg að skella á. Maður er búinn að fá sér svona þetta helsta sem maður þarf að hafa með sér, þannig að það er reynt að fara eins oft og maður getur, því eins og sagt er: "Once U pop U can't stop"

Allavega að þá eru hér nokkrar myndir... þetta eru ekkert merkilegar ferðir, heldur bara svona til að halda sér við í þessu og safna reynslu..

kv. Gummi St.

Smá hellismunur þarna.Þarna eyddum við síðan deginum.Horft niður vegginnÞarna er ég í miðri leið í veggnum, að klára lóðrétta hlutann.. svo verður hann auðveldariHér skrifar þú myndatextann.Hann er nú ekkert ómyndarlegur Sólheimajökullinn..