Borði

Hnappavallablús

Jón Viðar minnir á að skammt er þar til daginn fer að lengja aftur og þar til aftur kemur vor á Hnappavöllum. Hann sýnir hér nokkrar flottar myndir af völlunum.

Hér koma nokkrar myndir af stemningunni á Hnappavöllum í sumar og reyndar nokkrar eldri með. Aðsókn var góð í sumar og ýmis afrek unnin. Kamarinn var endurreistur í maí (fauk og varð að klessu síðasta vetur) og þá litu nýjar klifurleiðir dagsins ljós. Ein þeirra er Metrosexual (5.12c) í Gimlukletti og er hún 27 m há. Leiðin er afkvæmi Stefáns Steinars Smárasonar og Valdimars Björnssonar.

Valdi í MetrosexualStebbi glímir við Metrosexual (5.12c)Stebbi í MetrosexualValdi í jafnvægiEndurreisn kamarsinsPáskaliljur á bongó-degiGengið á vatni. Vellirnir í baksýnMiðskjól á sólskinsdegiLeikið á alls oddiDrullumall við AllsoddMagni Snævar (5 ára) prófar sportið