Borði

Veturinn er kominn!

Það vetrar snemma fyrir vestan þetta árið. Vestfirsku garparnir Rúnar Óli, Sigurður og Stefán dustuðu rykið af skíðunum og brugðu sér í Eyrarfjallið þann 6. okt.

Snjórinn hefur ekki látið á sér standa undanfarnar vikur og því ekki úr vegi að viðra skíðin aðeins. Við búum svo vel hér á Ísafirði að maður gengur nánast beint úr bakgarðinum upp í ágætis brekkur. Við vorum þrír á ferð seinnipartinn í dag, fimmtudaginn 6. október, undirritaður, Sigurður Jónsson (aka Búbbi) og Stefán Baldursson. En látum myndirnar tala.

,,Þetta er nú meiri vitleysan. Ekki var þetta svona erfitt í Kanada. Maður hringdi bara í þyrluna.Áfram!Útsýnið er ekki ónýtt....og áfram er haldið...Farið að rökkva.Svitinn þurrkaður. Stefán að ná okkur en hann lagði seinna af stað.Skíðin græjuð og menn farnir að hafa áhyggjur af myrkrinu.Brekkan metin.Og svo åka skidor!Stefán yfirbugaður af brekkunni.Flassið á litlu vélinni var ekki alveg að meika þessa mynd.Hér er brekkan í Eyrarfjallinu. 700 metra fallhæð. Myndin er tekin í fyrra.