Skrifað af: Guðmundur Freyr Jónsson
Sunnudagur, 28. ágúst 2005 18:22

Það er vel hægt að ganga á jöklana síðla sumars ef þekking á ferðum um sprungusvæði er til staðar. Guðmundur Freyr og félagar gengu á Eyjafjallajökul nú á dögunum.
Dagsferð upp Eyjafjallajökul
Við fórum 4 saman á Eyjafjallajökul á laugardaginn
Gengum frá Seljalandslaug og upp hlíðina þar og uppá jökul og alveg uppá topp.
Það var alveg frábært veður, algjört logn og varla ský á lofti alla leiðina, nema reyndar þegar við
náðum toppnum, þá kom alltíeinu rosaleg þoka yfir okkur, en var fjlót í burtu líka.
Jökullin var mjög sprunginn á þessu svæði eins og sést á myndunum hér að neðan, það var engin snjór neðst í jöklinum, svipað og á snæfellsjökli,
en bara mun stærri sprungur á þessum jökli..
Svo á leiðinni niður smelltum við okkur í smá klifur, sigum í litla sprungu og príluðum svo uppúr henni..











